Þjónustuaðili
Vinnueftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Staðsetningar
Höfuðborgarsvæðið
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.09.2026
Umsóknarfrestur
16.10.2026
Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Við leitum að einstaklingi sem kann vel til verka og hefur viðeigandi menntun og þekkingu þegar kemur að vinnuvélum og tækjum. Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks.
Starfið felst í skoðunum á vinnuvélum og tækjum, mati á öryggi þeirra og ástandi, leiðbeiningum til atvinnurekenda og eftirfylgni með úrbótum. Viðkomandi vinnur bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi sérfræðinga sem stuðlar að öruggari vinnustöðum um land allt.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík eða á Akureyri. Starfssvæðið er að mestu á því landsvæði sem starfstöðin er, en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Starfið er fjölbreytt og hentar þeim sem kunna vel við að vera á ferðinni og í beinum samskiptum við fólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning og framkvæmd skoðana á skoðunarskyldum vinnuvélum og tækjum, svo sem lyfturum, vinnulyftum, jarðvinnuvélum, krönum og húsalyftum og fl.
Mat á ástandi og öryggi vinnuvéla og tækja.
Skýrslugerð, skráning niðurstaðna og eftirfylgni með fyrirmælum.
Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um örugga notkun vinnuvéla og tækja.
Þátttaka í þróun og umbótum á skoðunum og eftirliti.
Framkvæmd verklegra og skriflegra prófa vegna vinnuvélaréttinda.
Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
Skilyrt
Iðn- eða háskólamenntun, svo sem á sviði vélvirkjunar, bifvélavirkjunar, rafiðna, vélfræði eða annara greina sem nýtist í starfi skilyrði.
Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Gilt ökuskírteini er skilyrði.
Hreint sakavottorð er skilyrði.
Reynsla
Reynsla af vinnu á vinnuvélum og tækjum er kostur.
Reynsla af viðhaldi, viðgerðum eða rekstri vinnuvéla er kostur.
Þekking sem nýtist við skoðanir, greiningu og mat á tækjabúnaði er kostur.
Góð kunnátta í ensku er kostur.
Reynsla af vinnuverndar- og öryggismálum er kostur.
Hæfni
Sýnir fram á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Sýnir fram á nákvæmni og ábyrgð.
Sýnir fram á góða dómgreind.
Sýnir fram á góða samskiptahæfni.
Sýnir fram á getu til að beita lausnarmiðaðri nálgun.
Sýnir fram á hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Frekari upplýsingar um starfið
Við bjóðum fjölbreytt og hagnýtt starf þar sem þú ert mikið á vettvangi og engir tveir dagar eru eins. Þú færð tækifæri til að vinna með reyndu fagfólki, þróast í starfi og leggja þitt af mörkum til að stuðla að öruggum vinnustöðum um land allt.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags . Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og leggjum áherslu á gott samstarf, fagmennsku og tækifæri til þróunar í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 16. október nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Sýna þarf fram á staðfestingu á menntun auk þess að skila þarf inn sakarvottorði ef af ráðningu verður, eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum alfred.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir
Tölvupóstur: bergrun.sigurjonsdottir@ver.is
Þjónustuaðili
Vinnueftirlitið
Upplýsingar um starf
Starf
Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Staðsetningar
Höfuðborgarsvæðið
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.09.2026
Umsóknarfrestur
16.10.2026