
Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026
Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofa Íslands gegnir lykilhlutverki í að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins í ört breytilegum heimi. Grunnur þess er skilvirkur rekstur og stöðugar umbætur.
Verðurstofa Íslands leitar að kraftmiklum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrarsviðs. Fjármála- og rekstrarsvið annast fjármálastjórn, reikningsskil, greiningu og miðlun upplýsinga um fjármál og rekstur. Sviðið veitir stjórnendum stuðning og stuðlar að gagnsæi og vandaðri upplýsingagjöf innan stofnunarinnar og til stjórnvalda. Jafnframt ber sviðið ábyrgð á daglegum rekstri og innri þjónustu Veðurstofunnar, meðal annars fasteignum og starfsaðstöðu, innkaupum, öryggis- og aðgangsmálum, skjalastjórn, móttöku og mötuneyti.
Framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar leiðir starfsemi og þróun fjármála- og rekstrarsviðs og ber ábyrgð á fjármálastjórn, fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni innan Veðurstofunnar.
Við leitum að einstaklingi með ríka leiðtogahæfileika, sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í öflugu stjórnendateymi, takast á við fjölbreytt og samfélagslega mikilvæg verkefni, stuðla að árangri, umbótum og jákvæðum liðsanda. Viðkomandi þarf að hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og tryggja ábyrga og skilvirka nýtingu almannafjár.
Áhugi á viðfangsefnum og áskorunum sem tengjast náttúruöflum landsins, loftslagsbreytingum og náttúruvísindum er kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á fjármálastjórn, fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni.
Ábyrgð á stjórnun og þátttaka í stefnumótun.
Fagleg forysta og ábyrgð á mannauði, fjárhag og rekstri sviðsins.
Leiða þróun, innleiðingu verkferla og umbóta.
Tryggja skilvirka og samþætta þjónustu sviðsins.
Stýra samskiptum og samstarfi við stjórnvöld og aðra hagaðila á sviði fjármála og reksturs.
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi.
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er æskileg.
Farsæl reynsla fjármálastjórnun og rekstri, þ.m.t. umgjörð og ferli áætlanagerðar og eftirfylgni.
Góð greiningarhæfni og reynsla af framsetningu tölulegra gagna.
Reynsla af stjórnun, stefnumótun og innleiðingu breytinga.
Leiðtogahæfileikar og mjög góð hæfni í samskiptum og samvinnu.
Markmiðasækni, útsjónarsemi, árangursdrift og áhugi á umbótum.
Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur sérfræðinga við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð og upplýsta ákvörðunartöku með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.
Um er að ræða fullt starf og taka laun mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 5. október nk.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Þar skal gerð grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni sem nýtist í starfinu með hliðsjón af hæfniskröfum auglýsingarinnar. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um Veðurstofuna má finna á www.vedur.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Auður Bjarnadóttir
Tölvupóstur: audur@vinnvinn.is
Unnur Ýr Konráðsdóttir
Tölvupóstur: unnur@vinnvinn.is

Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026