
Þjónustuaðili
Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Staðarhaldari á ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Staðarhaldari á ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða staðarhaldara til starfa á ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli við Bolungarvík.
Leitað er að áhugasömum einstaklingi til að annast rekstur og sjá um viðhald á tækjum og búnaði ratsjár- og fjarskiptastöðvarinnar.
Viðkomandi þarf að vera árangursmiðaður, sýna frumkvæði og geta tekist á við krefjandi verkefni við erfiðar aðstæður.
Starfið felur í sér daglega umsjón og eftirlit auk viðhalds svæða, búnaðar, tækja og mannvirkja. Um er að ræða dagvinnustarf en viðkomandi þarf einnig að geta sinnt útköllum utan hefðbundins vinnutíma. Þar af leiðandi er búseta á nærsvæði æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegt eftirlit með rekstri og öryggi stöðva
Bilanagreining, viðhald og umsjón með vélbúnaði og tækjum stöðvarinnar
Eftirlit og umsjón með vegi, nærumhverfi og framkvæmdum
Samskipti við verktaka og þjónustuaðila
Öryggis- og svæðisgæsla og almenn húsvarsla
Skráningar og eftirfylgni vegna rekstrar og viðhalds
Umsjón með varahlutalager og birgðum
Umsjón og eftirfylgni með öryggis- og gæðakröfum
Hæfniskröfur
Vélfræðingur, vélstjóri, vélvirkjameistari eða önnur sambærileg menntun og reynsla
Staðgóð þekking á varaaflsbúnaði, kælikerfum, eldvarnarkerfum og rafmagnsbúnaði
Ökuréttindi og vinnuvélapróf
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund
Reglusemi, nákvæmni og snyrtimennska
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012
Frekari upplýsingar um starfið
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta – Fagmennska.
Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landhelgisgæsla Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Staðarhaldari á ratsjár- og fjarskiptastöð Atlantshafsbandalagsins á Bolafjalli
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026