Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Íslenskar orkurann­sóknir

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í fjármálum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.08.2026

Umsóknarfrestur

03.09.2026

Sérfræðingur í fjármálum

ÍSOR leitar að öflugum sérfræðingi til starfa á fjármála- og rekstrarsvið ÍSOR.

Við leitum að einstaklingi með góða fjármálalega yfirsýn og sterka greiningarhæfni.

Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf þar sem megináhersla er á fjárhagslegt utanumhald og eftirlit með fjölbreyttum ráðgjafar- og rannsóknarverkefnum á sviði jarðvísinda sem ÍSOR vinnur fyrir viðskiptavini sína.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fjárhagslegt eftirlit með verkefnum og ráðgjöf við sviðs- og verkefnastjóra, meðal annars vegna fjárhagslegs undirbúnings tilboða, uppgjöra og eftirfylgni með samningum.

  • Umsjón með verkbókhaldi í Business Central, þar á meðal stofnun og viðhald verkefna út frá verkefnasamningum.

  • Framvindu-, kostnaðar- og aðrar fjárhagsgreiningar ásamt framsetningu niðurstaðna og upplýsingagjöf til stjórnenda.

  • Umsjón með mánaðarlegu tekju- og reikningaferli verkefna með verkefnastjórum í samráði við sviðsstjóra fjármála og rekstrar.

  • Þátttaka í þróunar- og umbótavinnu á verkferlum og kerfum.

  • Önnur verkefni á fjármála- og rekstrarsviði samkvæmt ákvörðun yfirmanns.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjármála eða sambærileg menntun ásamt starfsreynslu sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af áætlanagerð, fjárhagsuppgjörum, greiningarvinnu og framsetningu upplýsinga.

  • Mjög góð færni í Excel.

  • Reynsla af verkbókhaldi og fjárhagslegu verkefnaeftirliti er kostur.

  • Reynsla af Business Central og þekking á Power BI er kostur.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð .

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.

Frekari upplýsingar um starfið

Um 100% starf er að ræða á skrifstofu ÍSOR í Kópavogi.

Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um enda er við ráðningar í störf hjá ÍSOR tekið mið af jafnréttisáætlun. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 3. september nk.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

ÍSOR leggur áherslu á jöfn tækifæri starfsfólks, ánægða og árangursmiðaða liðsheild og framþróun. Metnaður ÍSOR er að vera í fararbroddi þekkingar á sviði sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda og virðisskapandi lausna sem miða að því að koma jörðinni og fólki til góða.

Aðalstöðvar ÍSOR eru í Kópavogi og starfsstöð er á Akureyri.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Auður Bjarnadóttir

Tölvupóstur: audur@vinnvinn.is

Bjarki Pétursson

Tölvupóstur: bjarki@vinnvinn.is

Þjónustuaðili

Íslenskar orkurann­sóknir

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í fjármálum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.08.2026

Umsóknarfrestur

03.09.2026