Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Dómstóla­sýslan

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í gagna- og upplýsingastjórnun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

19.10.2026

Sérfræðingur í gagna- og upplýsingastjórnun

Dómstólasýslan leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings í gagna- og upplýsingastjórnun hjá dómstólasýslunni. Ef þú hefur áhuga á að koma að uppbyggingu gagnasafna og greiningu upplýsinga með aðstoð tæknilausna er starfið fyrir þig.

Dómstólasýslan er sjálfstæð stjórnsýslustofnun sem fer meðal annars með yfirstjórn upplýsinga- og tæknimála við dómstóla og annast þróun þeirra. Unnið er að stafrænni þróun og fjölbreyttum umbótaverkefnum í þágu dómstóla með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði og miðla upplýsingum um starfsemi þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Koma að mótun framtíðarsýnar, þróun og forgangsröðun stafrænna lausna

  • Þróa og skipuleggja hagnýt gagna- og upplýsingasöfn

  • Samþætta gögn og vinna með gagnamódel. Tryggja að lausnir vinni vel saman svo sem með API vefþjónustum eða stafrænu vinnuafli

  • Vinna tölfræðigreiningar, skýrslur og setja upp mælaborð

  • Þróa og innleiða lausnir til að einfalda skjalavinnslu, flokkun og aðgengi að upplýsingum, t.d. með notkun tæknilausna

  • Tryggja að tæknilausnir styðji við reglur um skjalavörslu, í samvinnu við skjalastjóra

  • Tryggja að upplýsingar á vef séu réttar, uppfærðar og aðgengilegar

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af greiningu og vinnslu tölfræðigagna og annarra upplýsinga sem og framsetningu og miðlun þeirra

  • Reynsla af notkun gervigreindar til greininga, upplýsingavinnslu og framsetningu upplýsinga

  • Reynsla og mjög góð færni í notkun Excel og Power BI eða sambærilegs hugbúnaðar

  • Reynsla og þekking á Microsoft Azure umhverfinu er kostur

  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Metnaður til að tileinka sér nýjungar í upplýsingastjórnun

  • Framsýni og frumkvæði í starfi

  • Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð

  • Mjög góð færni í íslensk

Frekari upplýsingar um starfið

Nánari upplýsingar um dómstólasýsluna má finna á www.domstolasyslan.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, menntun og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lea Kristín Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: lea@intellecta.is

Kristín Haraldsdóttir

framkvæmastjóri dómstólasýslunnar

Tölvupóstur: kristin.haraldsdottir@domstolasyslan.is

Þjónustuaðili

Dómstóla­sýslan

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í gagna- og upplýsingastjórnun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

19.10.2026