
Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður vörvals og innkaupa
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.10.2026
Umsóknarfrestur
21.10.2026
Forstöðumaður vörvals og innkaupa
Við leitum að framsæknum og metnaðarfullum aðila til að ganga til lið við öflugan hóp starfsfólks ÁTVR. Vöruval og innkaup ber ábyrgð á vörusafni og vöruvali Vínbúða ásamt því að stýra vöruflæði til þeirra í takt við eftirspurn viðskiptavina.
Forstöðumaður vöruvals og innkaupa leiðir þróun vöruvals og ber ábyrgð innkaupum og birgðastýringu. Við leitum að leiðtoga sem hefur hæfni til að leiða og hvetja teymi til árangurs. Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi búi yfir góðri samskiptafærni og eigi auðvelt með að byggja upp árangursríkt samstarf við fjölbreyttan hóp samstarfsfólks og viðskiptavina. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri greiningarhæfni og eiga auðvelt með að greina tækifæri til umbóta.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra vöruvals og innkaupa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða og styðja við teymi vöruvals og innkaupa
Stýra umbótaverkefnum og stuðla að skilvirki þróun
Mótun reglna í samræmi við stefnu og framkvæmd vöruvals
Ber ábyrgð á innkaupum í samræmi við stefnu og markmið fyrirtækisins
Ber ábyrgð á birgðastýringu til Dreifingarmiðstöðvar og Vínbúða
Ber ábyrgð á samskiptum, samningum og upplýsingagjöf til birgja
Hefur yfirumsjón með gæðamálum og úrlausnum frávika
Leiða skynmat, rannsóknir og fræðslu á sviði vöruþekkingar
Ber ábyrgð á vöruskráningu og greiningu á söluárangri
Sinnir greiningu og áætlanagerð
Þjónusta og samskipti við innri og ytri viðskiptavini
Lögfræðileg verkefni tengt vöruvali og innkaupum
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
A.m.k. 3 ára reynsla af sambærilegu starfi
Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun
Reynsla af umbótaverkefnum og vilji til að leiða umbætur
Rík þjónustulund, mjög gott viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Mikil hæfni við gagnaúrvinnslu og greiningar
Hæfni til að miðla upplýsingum
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Mjög góð tölvukunnátta, reynsla og þekking á BC er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Kristín Snorradóttir
Tölvupóstur: starf@vinbudin.is

Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður vörvals og innkaupa
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.10.2026
Umsóknarfrestur
21.10.2026