Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsnemi á svið hagfræði og peningastefnu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

04.09.2026

Umsóknarfrestur

17.09.2026

Starfsnemi á svið hagfræði og peningastefnu

Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsóknum og greiningum sem hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf?

Seðlabanki Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starfsnemastöðu á svið hagfræði og peningastefnu með það að markmiði að veita innsýn í starfsemi Seðlabanka Íslands.

Sem starfsnemi tekur þú þátt í rannsóknum, greiningum og gagnavinnslu með hagfræðingum Seðlabankans. Starfið veitir dýrmæta reynslu í öflugu þekkingarumhverfi og er liður í að efla tengsl bankans við háskólasamfélagið og styðja við uppbyggingu framtíðarhagfræðinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoð við rannsóknar- og greiningarverkefni á sviði hagfræði og peningastefnu.

  • Aðstoð við söfnun, úrvinnslu og greiningu hagfræðilegra og tölfræðilegra gagna.

  • Þátttaka í gagnavinnslu og þróun greininga og rannsóknaverkefna.

  • Önnur verkefni undir handleiðslu sérfræðinga bankans.

Hæfniskröfur

  • Grunnpróf í hagfræði.

  • Framúrskarandi námsárangur í hagfræði á háskólastigi.

  • Ríkur áhugi á hagfræði, rannsóknum og gagnagreiningu.

  • Sterk greiningar- og tölfræðihæfni.

  • Fagleg, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.

  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Þekking á R, Python, Matlab eða öðrum sambærilegum greiningarverkfærum er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Svið hagfræði og peningastefnu er eitt af kjarnasviðum bankans. Meginhlutverk þess er að hafa umsjón með greiningu á þróun innlendra og erlendra efnahags- og peningamála. Sviðið gerir einnig þjóðhags- og verðbólguspár til þriggja ára og áhættumat sem liggur til grundvallar mótun peningastefnunnar. Greining á stöðu og efnahagshorfum hverju sinni er birt í ritinu Peningamálum og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin fjórum sinnum á ári. Jafnframt tekur sviðið þátt í mótun stefnu í gengis- og peningamálum og stundar rannsóknir á sviði efnahags- og peningamála.

Sem starfsnemi færðu tækifæri til að:

  • Kynnast störfum Seðlabankans.

  • Taka þátt í rannsóknum og greiningum sem styðja við mikilvægt hlutverk Seðlabanka Íslands.

  • Vinna með reyndum sérfræðingum og njóta handleiðslu þeirra í öflugu fagumhverfi, efla greiningar-, rannsóknar- og tæknilega hæfni þína.


Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs í fullu starfi. Starfsstöð er í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt einkunnayfirliti úr háskóla.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Við launasetningu starfsins er tekið mið af starfsheitinu ”nýliðar” skv. kjarasamningi. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Umsóknarfrestur er til og með 17.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bjarni Geir Einarsson

hagfræðingur á sviði hagfræði og peningastefnu

Tölvupóstur: bjarni.geir.einarsson@sedlabanki.is

Íris Guðrún Ragnarsdóttir

framkvæmdastjóri mannauðs og menningar

Tölvupóstur: mannaudur@sedlabanki.is

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsnemi á svið hagfræði og peningastefnu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

04.09.2026

Umsóknarfrestur

17.09.2026