Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

Upplýsingar um starf

Starf

Hveragerði- starfsmaður

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026

Hveragerði- starfsmaður

Vínbúðin Hveragerði óskar eftir starfsmanni í fullt starf. Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini

  • Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun

  • Umhirða búðar

Hæfniskröfur

  • Jákvæðni og góð þjónustulund

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Almenn tölvukunnátta

  • Reynsla af verslunarstörfum er kostur

Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.

Sakavottorðs er krafist.

Frekari upplýsingar um starfið

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.


ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks. Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti og eflum þannig þekkingu og kraft fyrirtækisins. Við viljum að starfsfólkið njóti þess að þróa fyrirtækið þannig að það þjóni viðskiptavinum sem best.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristjana Björg Júlíusdóttir

Tölvupóstur: hveragerdi@vinbudin.is

Sími: 560-7887

Thelma Kristín Snorradóttir

Tölvupóstur: starf@vinbudin.is

Sími: 560-7700

Þjónustuaðili

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins

Upplýsingar um starf

Starf

Hveragerði- starfsmaður

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.09.2026

Umsóknarfrestur

12.10.2026