Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og vinna á skemmtilegum vinnustað

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.09.2026

Umsóknarfrestur

16.10.2026

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og vinna á skemmtilegum vinnustað

Við leitum að einstaklingi með lausnarmiðað hugarfar sem hefur gaman af samskiptum við fólk, sýnir fagmennsku í starfi og vill hafa jákvæð áhrif á öryggi og vellíðan fólks á vinnustöðum landsins.

Við bjóðum upp á vinnustað sem leggur ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu, góð samskipti og jákvætt starfsumhverfi. Saman stuðlum við að bættri vellíðan og öryggi bæði hjá okkur og á vinnustöðum um allt land.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Starfssvæðið er að mestu á því landsvæði sem starfstöðin er, en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Starfið er fjölbreytt og hentar þeim sem kunna vel við að vera á ferðinni og í beinum samskiptum við fólk.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning og framkvæmd vettvangsathugana og stafrænna samskipta, auk eftirfylgni með fyrirmælum og skýrslugerðar.

  • Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu.

  • Taka þátt í fræðslu og miðlun þekkingar innan sem utan stofnunarinnar.

  • Þátttaka í teymisvinnu.

  • Þátttaka í umbótastarfi.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

Skilyrt

  • Iðn-, tækni- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

  • Gilt ökuskírteini er skilyrði.

  • Hreint sakavottorð skilyrði.

Reynsla

  • Reynsla af vinnuverndar-, gæða- eða öryggismálum er kostur.

  • Reynsla af ráðgjöf, fræðslu eða þjónustu við viðskiptavini er kostur.

  • Reynsla af stjórnsýslu eða opinberri þjónustu er kostur.

  • Reynsla af skýrslugerð og eða framsetningu gagna er kostur.

  • Reynsla af umbótastarfi er kostur.

Hæfni

  • Sýnir fram á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

  • Sýnir fram á nákvæmni og ábyrgð.

  • Sýnir fram á góða dómgreind.

  • Sýnir fram á góða samskiptahæfni.

  • Sýnir fram á getu til að beita jákvæðri og lausnarmiðaðri nálgun.

  • Sýnir fram á hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.


Frekari upplýsingar um starfið

Ef þig langar til að hafa jákvæð áhrif á vinnustaði landsins og taka þátt í að öll komi heil heim starfsævina á enda þá hvetjum við þig til að sækja um inn á alfred.is

Við bjóðum fjölbreytt og hagnýtt starf þar sem þú ert mikið á vettvangi og engir tveir dagar eru eins. Þú færð tækifæri til að vinna með reyndu fagfólki, þróast í starfi og leggja þitt af mörkum til að stuðla að öruggum vinnustöðum um land allt.

Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags . Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og leggjum áherslu á gott samstarf, fagmennsku og tækifæri til þróunar í starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 16. október nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Sýna þarf fram á staðfestingu á menntun auk þess að skila þarf inn sakarvottorði ef af ráðningu verður, eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum alfred.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ægir Ægisson

sviðsstjóri svið vinnuvélag

Tölvupóstur: aegir.aegisson@ver.is

Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir

Tölvupóstur: bergrun.sigurjonsdottir@ver.is

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og vinna á skemmtilegum vinnustað

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.09.2026

Umsóknarfrestur

16.10.2026