Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í markaðs- og vaxtaáhættu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026
Sérfræðingur í markaðs- og vaxtaáhættu
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan aðila til að sinna eftirliti með fjárhagslegum áhættum eftirlitsskyldra aðila á fjármálamarkaði, með áherslu á markaðs-, vaxta- og fjárfestingaráhættu. Í starfinu felst meðal annars mat á fastvaxtaáhættu fjármálafyrirtækja (IRRBB), áhrifum markaðsbreytinga á eignir og skuldbindingar, notkun afleiðna og áhættuvarna og því hvernig eftirlitsskyldir aðilar stýra áhættuþáttum.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til að dýpka þekkingu á áhættu á banka-, lífeyris- og vátryggingamarkaði og fá víðtæka sýn á ólíka áhættuþætti á fjármálamarkaði.
Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Starfsemi sviðsins felst jafnframt í að viðhafa yfirsýn yfir þróun áhættu á fjármálamarkaði og viðeigandi regluverk. Deild fjárhagslegra áhættuþátta sinnir greiningu og eftirliti með helstu fjárhagslegum áhættuþáttum þessara aðila, þar á meðal útlána-, markaðs-, lausafjár og fjármögnunaráhættu. Þá tekur svið varúðareftirlits þátt í mati á kerfisáhættu, í samvinnu við fjármálastöðugleikasvið bankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit með markaðs-, vaxta- og fjárfestingaráhættu fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga
Mat á fastvaxtaáhættu (IRRBB), áhrifum markaðsbreytinga á eignir og skuldbindingar, afleiðum og áhættuvörnum
Mat á eiginfjárþörf fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga vegna markaðs- og vaxtaáhættu
Mat á því hvernig eftirlitsskyldir aðilar mæla, meta og stýra fjárhagslegri áhættu
Þróun á aðferðafræði Seðlabankans við mat á markaðs- og vaxtaáhættu fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga
Þátttaka í norrænu og alþjóðlegu samstarfi
Hæfniskröfur
Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði fjármála, hagfræði, verkfræði, stærðfræði eða skyldra greina
Þekking á eðli fjármálamarkaða og fjármálagerningum
Viðeigandi þekking og reynsla af störfum á fjármálamarkaði er kostur
Rík greiningarhæfni og hæfni til að vinna úr gögnum
Þekking á gagnagrunnum og reynsla af gagnavinnslu, t.d. með SQL, Power BI eða R
Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
Frumkvæði, heiðarleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi.
Gott vald á íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á Seðlabanka Íslands. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jónas Þór Brynjarsson, forstöðumaður fjárhagslegra áhættuþátta
forstöðumaður fjárhagslegra áhættuþátta
Tölvupóstur: jonas.thor.brynjarsson@sedlabanki.is
Hólmfríður Þorvaldsdóttir
mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar
Tölvupóstur: holmfridur.thorvaldsdottir@sedlabanki.is
Þjónustuaðili
Seðlabanki Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í markaðs- og vaxtaáhættu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026