Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Héraðs­dómur Reykja­ness

Upplýsingar um starf

Starf

Dómvörður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026

Dómvörður

Héraðsdómur Reykjaness óskar eftir að ráða dómvörð í fullt starf. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða frá 1. janúar 2027.

Leitað er að traustum einstaklingi í starf dómvarðar hjá Héraðsdómi Reykjaness. Starfið felur í sér fjölþætt öryggis- og þjónustuhlutverk við dómstólinn.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefni dómvarðar eru mjög fjölbreytt en helstu verkefni eru:

  • Ýmis verkefni tengd þinghöldum eftir óskum dómara hverju sinni.

  • Aðstoð við starfsfólk og gesti dómhússins og gæta öryggis þeirra.

  • Eignavarsla og almenn húsvarsla.

  • Bregðast við frávikum í öryggismálum í samræmi við verklagsreglur og þjálfun.

  • Almenn tækniaðstoð og úrlausn tölvu- og tæknivandamála á vinnustað.

  • Umsjón og ábyrgð á að halda dómsölum, biðsvæði og kaffistofu starfsfólks snyrtilegum.

  • Annast samskipti við fangaflutningamenn/lögreglu.

  • Umsjón með förgun og flokkun á sorpi.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, samvinnufærni og góð þjónustulund.

  • Vandvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Líkamlegt og andlegt atgervi til að mæta óvæntum uppákomum í starfseminni.

  • Góð tölvufærni.

  • Reynsla og þekking á sambærilegum störfum er kostur.

  • Iðnmenntun er kostur sem og önnur menntun sem nýtist í starfi.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. janúar 2027.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá, upplýsingar um meðmælendur og prófskírteini ef við á.

Umsækjandi kann að verða beðinn um að skila sakavottorði í ráðningarferlinu. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá dómstólnum.

Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Arndís Sveinbjörnsdóttir

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: arndis.sveinbjornsdottir@domstolar.is

Þjónustuaðili

Héraðs­dómur Reykja­ness

Upplýsingar um starf

Starf

Dómvörður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026