Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lands­kjör­stjórn

Upplýsingar um starf

Starf

Landskjörstjórn auglýsir starf sérfræðings

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026

Landskjörstjórn auglýsir starf sérfræðings

Leitað er að drífandi og jákvæðum einstaklingi til að taka þátt í teymi landskjörstjórnar. Við viljum fá til liðs við okkur öflugan sérfræðing sem hefur metnað til þess að sinna verkefnum landskjörstjórnar af heilindum. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og áhuga á málefnum kosninga og búi yfir virkri umbótahugsun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni felast í að taka þátt í starfsemi og verkefnum landskjörstjórnar svo sem að veita upplýsingar, fræðslu og leiðbeiningar, útbúa kjörgögn og birta niðurstöðu kosninga opinberlega.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi, æskilegt að hún sé á sviði stjórnmálafræði eða öðrum skyldum greinum.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi.

  • Frumkvæði og faglegur metnaður.

  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni, fáguð framkoma, rík þjónustulund og reynsla af árangursríkri teymisvinnu.

  • Reynsla af vefumsjón er nauðsynleg, auk þess sem krafist er góðrar almennrar tölvukunnáttu og framúrskarandi hæfni í ritun og framsetningu íslensks máls.

  • Góð tungumálakunnátta, einkum í ensku og einu norðurlandamáli.

  • Góð hæfni við að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti.

  • Hæfni til að sýna sveigjanleika í starfi og vera tilbúinn til að ganga í öll verkefni.

  • Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af vinnu við framkvæmd kosninga.

Frekari upplýsingar um starfið

Landskjörstjórn er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga og annast framkvæmd kosningalaga. Markmið landskjörstjórnar er að styrkja virkt lýðræði og efla, samhæfa og þróa framkvæmd kosninga, ásamt því að auka fræðslu og leiðbeiningar um kosningar. Landskjörstjórn á í víðtæku samstarfi og samskipti við fjölda hagsmunaaðila á sviði kosningaframkvæmdar. Vinnustaðurinn er í miðbæ Reykjavíkur og lögð er áhersla á góðan starfsanda, þægilegt vinnuumhverfi og heilindi í starfi.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.

Ráðið er í starfið frá 1. nóvember nk. Starfshlutfall er 100%.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Landskjörstjórn leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.

Tekið er fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Vakin er athygli á persónuverndarstefnu landskjörstjórnar fyrir umsækjendur um laus störf hjá landskjörstjórn.

Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026. Umsóknir ásamt fylgigögnun skal senda á netfangið gudrun@auki.is, merkt „Umsókn hjá landskjörstjórn.“

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ástríður Jóhannesdóttir

framkvæmdastjóri landskjörstjórnar

Sími: 540-7500

Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir

hjá Auki mannauðs- og stjórnendaráðgjöf

Tölvupóstur: gudrun@auki.is

Þjónustuaðili

Lands­kjör­stjórn

Upplýsingar um starf

Starf

Landskjörstjórn auglýsir starf sérfræðings

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026