
Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í mötuneyti ÁTVR
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026
Starfsmaður í mötuneyti ÁTVR
ÁTVR leitar að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu. Viðkomandi verður staðgengill matreiðslumanns og tekur þá ábyrgð sem því fylgir í hans fjarveru.
Mötuneyti ÁTVR er staðsett að Stuðlahálsi 2, 110 Reykavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
Framreiðir morgunmat og aðstoðar við undirbúning hádegisverðar
Áfyllingar og afgreiðsla í matsal
Uppvask og frágangur
Í fjarveru matreiðslumanns
Yfirumsjón með morgunmat og matreiðsla á hádegisverði
Sjá til þess að dagleg þrif séu í samræmi við gæðakerfi ÁTVR
Umsjón með mat- og veisluföngum fyrir fundi og uppákomur
Hæfniskröfur
Reynsla af sambærilegu starfi
Áhugi á heilsueflandi matargerð
Snyrtimennska áskilin
Gott viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Kristín Snorradóttir
Tölvupóstur: starf@vinbudin.is

Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í mötuneyti ÁTVR
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.09.2026
Umsóknarfrestur
05.10.2026