Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026
Tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Skipað verður í embættið frá og með 5. október 2026 eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum. Hins vegar er um að ræða setningu dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Sett verður í það embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda skilar ráðherra umsögn sinni, til og með 31. ágúst 2029.
Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf héraðsdómara.
Frekari upplýsingar um starfið
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 21. september nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026
Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026