Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Hugverka­stofan

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

10.10.2026

Lögfræðingur

Hugverkastofan leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpun og hugverkum í starf lögfræðings.

Í boði er spennandi starf í nútímalegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu hjá metnaðarfullri stofnun sem starfar í alþjóðlegu umhverfi. Starfið er á hugverka- og stjórnsýslusviði.

Nánari upplýsingar um Hugverkastofuna er að finna á www.hugverk.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Túlkun laga, reglugerða og fordæma við úrlausn mála.

  • Meðhöndlun umsókna, skráninga og erinda.

  • Undirbúningur stjórnvaldsákvarðana og úrskurða.

  • Leiðbeiningar til viðskiptavina.

  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi samkvæmt ákvörðun yfirmanns.

  • Þátttaka í teymisvinnu.

  • Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði, námsáfangar eða meistarapróf á sviði hugverkaréttar er kostur.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og hæfni til að vinna í teymi.

  • Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.

  • Lausnamiðuð rökhugsun og greiningarhæfni.

  • Nákvæmni í vinnubrögðum.

  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.


Frekari upplýsingar um starfið

Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Nánar um ferlið:

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.

Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina.

Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Auður Bjarnadóttir

Tölvupóstur: audur@vinnvinn.is

Unnur Ýr Konráðsdóttir

Tölvupóstur: unnur@vinnvinn.is

Þjónustuaðili

Hugverka­stofan

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.10.2026

Umsóknarfrestur

10.10.2026