Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölmiðla­nefnd

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

04.10.2026

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar

Fjölmiðlanefnd óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra.

Framkvæmdastjóri annast daglega framkvæmd og stjórnun þeirra verkefna sem nefndinni eru falin samkvæmt lögum og samningum. Auk þess ber framkvæmdastjóri ábyrgð á rekstri, þ.m.t. fjárreiðum stofnunarinnarog daglegri stjórnun vinnustaðarins. Framkvæmdastjóri nefndarinnar telst embættismaður og fer um starfskjör hans eftir lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Framkvæmdastjóri er ráðinn er til fimm ára í senn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg og rekstrarleg forysta stofnunarinnar.

  • Undirbúningur, framkvæmd og eftirfylgni verkefna sem nefndinni er ætlað að sinna skv. lögum og samningum.

  • Yfirumsjón með fjármálum stofnunarinnar og gerð fjárhags- og rekstraráætlana.

  • Stjórnsýsla og samskipti við ráðuneyti, stjórnvöld og aðra opinbera aðila.

  • Samskipti við innlenda og erlenda aðila.

  • Frumkvæði að samstarfi og fylgja eftir verkefnum á sviði miðla- og upplýsingalæsis og félagslegs netöryggis.

  • Móta framtíðarsýn fyrir starfsemina og stuðla að áframhaldandi þróun hennar.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi auk sérþekkingar á sviði fjölmiðlamála.

  • Reynsla af stjórnun og rekstri, þ.m.t. áætlanagerð.

  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Reynsla af stefnumótunarvinnu og innleiðingu stefnu.

  • Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli, þekking á Norðurlandamáli er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Fjölmiðlanefnd hefur verið starfandi síðan 2011 og eru stöðugildi hjá stofnuninni 10 talsins.
Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem annast eftirlit með lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, eftirlit með lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu nr. 23/2013 og eftirlit með lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum nr. 62/2006 og annast daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til. Þá sér nefndin jafnframt um umsýslu og úrvinnslu umsókna um stuðning til einkarekinna fjölmiðla ár hvert. SAFT verkefnið fluttist til Fjölmiðlanefndar árið 2024 og hefur stofnunin nú fengið Evrópustyrk til að halda úti Safer Internet Center undir merkjum Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands til næstu þriggja ára.

Nýr framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar þarf að vera tilbúinn til að leiða nefndina í gegnum mögulegar breytingar á starfsemi og umbætur í rekstri hennar.

Laun eru samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra í samræmi við grunnmat starfa forstöðumanna. Um 100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu auk afrita af prófskírteinum.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 04.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Auður Bjarnadóttir

Tölvupóstur: audur@vinnvinn.is

Hilmar G. Hjaltason

Tölvupóstur: hilmar@vinnvinn.is

Þjónustuaðili

Fjölmiðla­nefnd

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

04.10.2026