
Þjónustuaðili
Úrvinnslusjóður
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026
Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Við leitum að öflugum gagnasérfræðingi með brennandi áhuga á gagnadrifinni ákvarðanatöku, sjálfvirknivæðingu ferla og nýtingu tækni til að auka skilvirkni í rekstri. Starfið felur í sér greiningu og vinnslu gagna, þróun sjálfvirkra lausna, uppsetningu mælaborða og samstarf við stjórnendur og starfsmenn um að umbreyta gögnum í verðmæta innsýn.
Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í að þróa og viðhalda sjálfvirkum ferlum, bæta gæði gagna og styðja við stefnumótun og rekstur stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kortleggja og greina rekstrarferla með það að markmiði að finna tækifæri til sjálfvirknivæðingar
Hanna, þróa og viðhalda sjálfvirkum verkferlum og samþættingu milli kerfa
Safna, vinna og greina gögn úr ólíkum gagnakerfum
Byggja upp og viðhalda mælaborðum, KPI-mælingum og skýrslum
Tryggja gæði, áreiðanleika og samræmi gagna
Þróa lausnir með Power Platform, SQL, Python eða sambærilegum tækjum
Stuðla að gagnamenningu innan sjóðsins og veita ráðgjöf um nýtingu gagna
Fylgjast með þróun á sviði gagnavinnslu, gervigreindar og sjálfvirknilausna
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í tölvunarfræði, verkfræði, gagnavísindum eða sambærilegum greinum
Reynsla af gagnagreiningu og gagnavinnslu
Góð þekking á SQL og reynsla af Power BI eða sambærilegum greiningarverkfærum
Skilningur á gagnagrunnum, gagnalíkönum og kerfatengingum
Reynsla af sjálfvirknivæðingu ferla og notkun lausna á borð við Power Platform eða sambærileg kerfi er kostur
Reynsla af verkefnastjórnun og umbótaverkefnum er kostur
Góð samskipta- og samstarfshæfni
Sterk greiningarhæfni og lausnamiðuð nálgun
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Við bjóðum
Fjölbreytt og krefjandi starf á vinnustað sem er í mikilli þróun
Tækifæri til að leiða verkefni á sviði gagnamála og sjálfvirknivæðingar
Tækifæri til símenntunar og faglegs vaxtar
Tækifæri til að taka þátt í umbótum og framþróun í starfseminni
Úrvinnslusjóður gegnir mikilvægu og spennandi hlutverki í hringrásarhagkerfinu. Hlutverk Úrvinnslusjóðs er að skapa hagræna hvata sem stuðla að hringrásarhagkerfi með áherslu á verðmætasköpun og umbreytingu úrgangs í hráefni. Úrvinnslusjóður semur um úrvinnslu úrgangs á grundvelli útboða eða verksamninga eftir því sem við á.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðeigandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Geirlaug Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: geirlaug@hagvangur.is
Þórdís Sif Arnarsdóttir
Tölvupóstur: thordis@hagvangur.is

Þjónustuaðili
Úrvinnslusjóður
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026