Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Héraðs­dómur Reykja­ness

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður dómara

Staðsetningar

Höfuðborgarsvæðið

Suðurnes

Starf skráð

21.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Aðstoðarmaður dómara

Héraðsdómur Reykjaness auglýsir laust til umsóknar starf löglærðs aðstoðarmanns dómara. Aðstoðarmenn heyra undir dómstjóra og fer um kjör þeirra eftir kjarasamningi. Leitað er eftir drífandi lögfræðingi sem öðlast hefur nokkra starfsreynslu og býr yfir færni til að greina lögfræðileg álitaefni. Starfið krefst sjálfstæðis og nákvæmni í vinnubrögðum. Um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með reglulegum dómþingum í einkamálum og gjaldþrotamálum

  • Meðferð útivistarmála, þ. á m. áritun stefna og ritun dóma og úrskurða

  • Meðferð sakamála þar sem vörnum er ekki haldið uppi

  • Ritun úrskurða/ákvarðana í útburðar- og innsetningarmálum, gjaldþrotamálum og málum samkvæmt lögum um skipti á dánarbúum o.fl. þegar vörnum er ekki haldið uppi

  • Áritun sektarboða og aðfararbeiðna

  • Dómkvaðning matsmanna og meðferð vitnamála


Hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að hafa lokið embættisprófi eða grunnnámi ásamt meistaraprófi í lögum og uppfylla jafnframt að öðru leyti skilyrði 2.-6. töluliðar 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla

  • Að lágmarki tveggja ára starfsreynsla á sviði lögfræði

  • Reynsla af dómstörfum æskileg

  • Haldgóð þekking í réttarfari

  • Góð tölvu- og tækniþekking

  • Mjög góð færni í íslensku og góð enskukunnátta.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð í mannlegum samskiptum


Frekari upplýsingar um starfið

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi fullnægi fyrrgreindum hæfniskröfum.


Nánari upplýsingar veitir Arndís Sveinbjörnsdóttir skrifstofustjóri og skulu fyrirspurnir sendar á netfangið arndis.sveinbjornsdottir@domstolar.is.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Ráðið verður í starfið frá og með 1. nóvember 2026.

Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði frá birtingu auglýsingar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Þjónustuaðili

Héraðs­dómur Reykja­ness

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður dómara

Staðsetningar

Höfuðborgarsvæðið

Suðurnes

Starf skráð

21.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026