
Þjónustuaðili
Byggðastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í áhættustýringu – óstaðbundið starf
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026
Sérfræðingur í áhættustýringu – óstaðbundið starf
Viltu gegna lykilhlutverki í eftirliti með áhættustefnu og innra eftirliti hjá Byggðastofnun?
Við leitum að öflugum sérfræðingi til að annast áhættueftirlit og taka virkan þátt í þróun áhættustýringar stofnunarinnar. Starfið er fjölbreytt og faglega krefjandi en gefandi. Það felur m.a. í sér tækifæri til að hafa áhrif á þróun stjórnarhátta, mótun innra starfs og verkferla hjá stofnuninni. Starfið heyrir undir forstöðumann rekstrarsviðs og að hluta undir forstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Gerð og eftirfylgni áhættustefnu Byggðastofnunar skv. verklagsreglum.
Gerð áhættuskýrslna og skýrslugjöf til stjórnar.
Skýrslugjöf til eftirlitsaðila og annarra hagaðila.
Umsjón með afskriftarsjóði útlána.
Þátttaka í gerð ársreiknings og árshlutauppgjörs.
Þróun og eftirfylgni innra eftirlits og tengdra verkferla.
Eftirfylgni með breytingum á regluverki um fjármálastofnanir og mat á áhrifum þeirra á starfsemi stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði viðskiptafræði, hagfræði, fjármála eða reikningshalds.
Góður skilningur á fjármálum og góð greiningarhæfni.
Reynsla af greiningarvinnu og færni í Excel eru skilyrði.
Hæfni til að setja flóknar upplýsingar fram á skýran og hnitmiðaðan hátt.
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
Góð samskipta- og samstarfshæfni.
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Hæfni til að forgangsraða verkefnum, halda yfirsýn og skila vandaðri vinnu innan tímamarka.
Frekari upplýsingar um starfið
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og staðfesting á prófgráðum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur.
Starfsaðstaða er í nýjum húsakynnum Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Þó er mögulegt að sinna starfinu frá annarri starfsstöð utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins. Umsækjendur skulu tilgreina ósk um staðsetningu í umsókn sinni.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Starfshlutfall er 100%.
Umsókn skal skilað í umsóknargátt á heimasíðu Byggðastofnunar, byggdastofnun.is. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um stofnunina.
Starfið býður upp á
Áhrif á þróun áhættustýringar og stjórnarhátta hjá Byggðastofnun.
Sjálfstætt og fjölbreytt sérfræðistarf.
Samstarf við stjórnendur og aðkoma að upplýsingagjöf til stjórnar.
Tækifæri til að þróa verklag, greiningar og innra eftirlit.
Fjölskylduvænt starfsumhverfi og möguleika á að sinna starfinu hvar sem er á landinu, utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Byggðastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í áhættustýringu – óstaðbundið starf
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.09.2026
Umsóknarfrestur
18.09.2026