Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður greininga og útgáfu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.08.2026

Umsóknarfrestur

03.09.2026

Forstöðumaður greininga og útgáfu

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns greininga og útgáfu á sviði hagfræði og peningastefnu.

Svið hagfræði og peningastefnu er eitt af kjarnasviðum bankans. Meginhlutverk þess er að hafa umsjón með greiningu á þróun innlendra og erlendra efnahags- og peningamála. Sviðið gerir einnig þjóðhags- og verðbólguspár til þriggja ára og áhættumat sem liggur til grundvallar mótun peningastefnunnar. Greining á stöðu og efnahagshorfum hverju sinni er birt í ritinu Peningamálum og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin fjórum sinnum á ári. Jafnframt tekur sviðið þátt í mótun stefnu í gengis- og peningamálum og stundar rannsóknir á sviði efnahags- og peningamála.

Í deild greiningar og útgáfu fer m.a. fram greining á þróun innlendra og erlendra efnahags- og peningamála byggð á ólíkum geirum þjóðarbúskaparins ásamt þátttöku í spágerð og almennum rannsóknum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á uppbyggingu deildar og faglegri þróun verkefna.

  • Dagleg verkstjórn og mótun sterkrar liðsheildar.

  • Fylgjast með innlendri og alþjóðlegri þróun efnahagsmála, greina og miðla niðurstöðum.

  • Leiða vinnu í tengslum við greiningu og skrif í Peningamál.

  • Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans.

  • Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðasviðum Seðlabankans.

Hæfniskröfur

  • Framhaldsmenntun í hagfræði.

  • Sterkir leiðtogahæfileikar.

  • Reynsla af daglegri verkstjórn og mannaforráðum.

  • Þekking og reynsla á framkvæmd og miðlun peningastefnunnar.

  • Góð greiningarfærni og reynsla af spágerð.

  • Reynsla af ritstjórn og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.

  • Frumkvæði, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.


Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Karen Á. Vignisdóttir

aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu

Tölvupóstur: karen.vignisdottir@sedlabanki.is

Íris Guðrún Ragnarsdóttir

framkvæmdastjóri mannauðs og menningar

Tölvupóstur: mannaudur@sedlabanki.is

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður greininga og útgáfu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.08.2026

Umsóknarfrestur

03.09.2026