Fara beint í efnið

Sækja um atvinnuleyfi

Á þessari síðu

Íþróttafólk

Skilyrði

  • Íþróttafélagið er innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

  • Einstaklingurinn sem á að ráða hefur gert ráðningarsamning við íþróttafélag um að stunda eða þjálfa tiltekna íþrótt hjá félaginu.

  • Íþróttafélagið greiðir heimflutning einstaklingsins að starfstíma loknum í ákveðnum tilfellum.

Gildistími

Atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk sem veitt er í fyrsta skipti er ekki veitt lengur en í eitt ár, en þó aldrei lengur en sem nemur ráðningartímanum samkvæmt ráðningarsamningi. Almennt eru atvinnuleyfi leikmanna veitt til yfirstandandi leiktíðar. Atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk er hægt að framlengja til allt að tveggja ára. Með umsókn um framlengingu á tímabundnu atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk þarf að skila inn sömu gögnum og með nýrri umsókn.

Við afgreiðslu umsóknar getur stofnunin kannað hvernig staðið hefur verið að uppgjöri launa og staðgreiðslu skatta sem og tryggingagjaldi lögum samkvæmt vegna annarra atvinnuleyfishafa sem hafa starfað hjá félaginu.

Sækja um

Umsókn er lögð fram hjá Útlendingastofnun

Framlenging atvinnuleyfis

Með umsókn um framlengingu á atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk þurfa öll sömu skilyrði að vera uppfyllt og þegar leyfið var veitt í fyrsta sinn. Vísast því til þeirra skilyrða sem tiltekin eru að ofan.

Enn fremur þarf íþróttafélagið að hafa staðið skil á staðgreiðslu skatta sem og tryggingagjaldi lögum samkvæmt vegna starfa útlendingsins og annarra atvinnuleyfishafa sem hjá félaginu starfa.

Útlendingi er almennt heimilt að starfa meðan að umsókn um framlengingu leyfis hjá sama íþróttafélagi er í vinnslu. Það er þó skilyrði að umsókn um framlengingu sé lögð inn til Útlendingastofnunar að lágmarki fjórum vikum áður en að fyrra leyfi rennur út.

Að láni til annars íþróttafélags

Atvinnuleyfi er bundið þeim atvinnurekanda sem það er gefið út vegna og flytjast leyfi ekki á milli atvinnurekenda.

Fari leikmaður til starfa hjá nýjum atvinnurekanda þá þarf bæði að sækja um nýtt atvinnuleyfi fyrir leikmann og launagreiðslur þurfa enn fremur að fara fram hjá hinum nýja atvinnurekanda.

Hvenær má leikmaður hefja störf

Útlendingur má ekki hefja störf hjá íþróttafélagi fyrr en að atvinnuleyfi hefur verið veitt.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun