Fara beint í efnið

Sækja um atvinnuleyfi

Á þessari síðu

Sérhæfðir starfsmenn í kennslu, fræðistörfum eða vísindum samkvæmt samningi

Skilyrði

Vegna þjónustusamninga

  • Hið erlenda fyrirtæki sem veita á þjónustu hér á landi hafi ekki starfstöð hér á landi.

  • Launakjör starfsmanns á meðan hann dvelur á Íslandi eru í samræmi við lög og gildandi kjarasamninga hér á landi.

  • Gerður hefur verið þjónustusamningur milli hins erlenda þjónustufyrirtækis og hins innlenda notendafyrirtækis.

  • Í þjónustusamningi eða staðfestum viðauka við hann komi fram að nauðsynlegt sé að sá einstaklingur sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir sinni þeirri þjónustu sem á að veita og að viðkomandi hafi sérhæfingu til að sinna umræddri þjónustu.

Leyfi í þessum flokki eru ekki veitt vegna almennra ófaglærðra starfa.

Vegna samstarfssamninga um kennslustörf, fræðistörf eða vísindastörf

  • Samstarfssamningur um kennslu-, fræði- eða vísindastörf milli hins innlenda og erlenda atvinnurekanda þarf að liggja fyrir. Samstarfssamningar um önnur störf falla ekki hér undir.

  • Í samstarfssamningi þarf að koma fram að um sé að ræða starf sem starfsmaður hins erlenda atvinnurekanda mun gegna hér á landi á grundvelli samstarfs milli hins íslenska atvinnurekanda og erlenda atvinnurekandans í tengslum við kennslu-, fræði- eða vísindastörf.

  • Viðkomandi starfsmaður hins erlenda atvinnurekanda skal hafa lokið háskólanámi sem er nauðsynlegt til að gegna því starfi sem um ræðir.

Gildistími

Leyfi á þessum grundvelli eru almennt veitt til allt að 12 mánaða en þó aldrei lengur en til samræmis við fyrirhugaða þjónustuveitingu. Heimilt er að endurnýja leyfi á þessum grundvelli til 12 mánaða í senn.

Sækja um

Umsókn er lögð fram hjá Útlendingastofnun

Reglur um skatta

Það felst í eðli atvinnuleyfa á grundvelli þjónustu- eða samstarfssamninga að launagreiðslur starfsmanns fara fram í heimaríki starfsmanns hjá hinum erlenda launagreiðanda. Þrátt fyrir það þurfa umsækjendur leyfa að kynna sér þær reglur sem gilda um skattlagningu í heimaríki og hér á landi og samspil þeirra.

Framlenging atvinnuleyfis

Með umsókn um framlengingu á atvinnuleyfi þarf að skila inn sömu gögnum og með nýrri umsókn, að menntunargögnum undanskildum. Sé umsókn um framlengingu leyfis hjá sama atvinnurekanda skilað áður en fyrra leyfi rennur út má starfsmaður halda áfram störfum meðan umsókn um framlengingu er til vinnslu.

Starfsmaður lætur af störfum

Láti starfsmaður af störfum áður en atvinnuleyfi rennur út er umsækjendum skylt að upplýsa Útlendingastofnun um það. Nægjanlegt er að tilkynna um starfslok með tölvupósti á netfangið atvinnuleyfi@utl.is.

Lög og reglur

Grein 15 í lögum númer 97 frá árinu 2002 um atvinnuréttindi útlendinga.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun