Sækja um atvinnuleyfi
Á þessari síðu
Sérstakar ástæður
Skilyrði
Einstaklingur sem á að ráða til starfa er handhafi einhvers af eftirfarandi leyfum:
bráðabirgðadvalarleyfi,
dvalarleyfi fyrir hugsanlegt fórnarlamb mansals,
dvalarleyfi fyrir fórnarlamb mansals,
dvalarleyfi fyrir foreldra
dvalarleyfi á grundvelli lögmæts tilgangs.
Nauðsynleg gögn
Frumrit af umsókn
Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna sérstakra aðstæðna
Á umsókninni eiga að vera fullnægjandi upplýsingar um báða aðila. Þar á meðal heimilisfang einstaklingsins sem á að ráða til starfa, bæði hér á landi og í heimalandi. Tilgreina skal netfang beggja umsækjenda.
Umsögn stéttarfélags
Afla þarf umsagnar stéttarfélags á umsókn áður en henni er skilað inn. Reitur 4, IV. Nema stéttarfélagið sé Efling. Í þeim tilvikum aflar Vinnumálastofnun umsagnarinnar.
Ráðningarsamningur
Ráðningarsamningurinn er gerður milli einstaklingsins og atvinnurekanda. Það sem þarf að koma fram er meðal annars:
Upplýsingar um fyrirhugað starf viðkomandi einstaklings hjá atvinnurekandanum og starfsfyrirkomulag.
Upplýsingar um lífeyrissjóð sem greiða á til vegna starfa viðkomandi.
Launakjör útlendings þurfa að vera í samræmi við gildandi kjarasamninga. Allar launatölur þurfa að koma fram á samningi.
Það er ekki nauðsynlegt að nota staðlað form ráðningarsamnings af vef Vinnumálastofnunar en það þarf að gæta að því að efnislegar kröfur til samnings eru þær sömu.
Undirskriftir
Bæði einstaklingurinn sem á að ráða til starfa og atvinnurekandi þurfa að skrifa undir umsókn og ráðningarsamning.
Ábyrgð umsækjenda
Það er á ábyrgð umsækjenda að leggja fram nauðsynleg gögn með umsókn um tímabundið atvinnuleyfi. Ef nauðsynleg gögn vantar getur afgreiðsla umsóknarinnar tafist eða henni verið synjað. Vinnumálastofnun óskar eftir viðbótargögnum ef þörf er talin á þeim.
Skila umsókn
Umsókninni er skilað til:
Útlendingastofnunar
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Utan höfuðborgarsvæðis
Umsókn er skilað til viðeigandi skrifstofu sýslumanns.
Framlenging atvinnuleyfis
Með umsókn um framlengingu á atvinnuleyfi á grundvelli sérstakra ástæðna þarf að skila inn sömu gögnum og með nýrri umsókn, það er, umsóknareyðublaði og ráðningarsamningi. Gæta þarf þess að nauðsynlegar upplýsingar komi fram á þeim gögnum. Sé umsókn um framlengingu leyfis hjá sama atvinnurekanda skilað áður en fyrra leyfi rennur út má starfsmaður halda áfram störfum meðan umsókn um framlengingu er til vinnslu.
Það er á ábyrgð beggja umsækjenda að leggja fram þau gögn sem eru á listanum. Ef öll gögn eru ekki lögð fram með umsókninni eða upplýsingum á þeim er ábótavant leiðir það til þess að afgreiðsla tefst eða umsókninni verður synjað. Vinnumálastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum ef stofnunin telur þörf á.
Nýr atvinnurekandi
Með umsókn um nýtt atvinnuleyfi hjá nýjum atvinnurekanda þarf að skila inn sömu gögnum og með nýrri umsókn, það er, umsóknareyðublaði og ráðningarsamningi. Gæta þarf að nauðsynlegar upplýsingar komi fram á þeim gögnum og afla umsagnar stéttarfélags áður en umsókn er skilað inn til úrvinnslu.
Starfsmaður lætur af störfum
Láti starfsmaður af störfum áður en atvinnuleyfi rennur út er umsækjendum skylt að upplýsa Vinnumálastofnun um það. Nægjanlegt er að senda tilkynningu með tölvupósti á netfangið atvinnuleyfi@vmst.is
Almennar reglur viðeigandi kjarasamnings gilda um uppsögn starfsmanns enda skuli starfsmenn sem starfa á grundvelli atvinnuleyfa njóta sömu réttinda og innlendir starfsmenn.
Lög og reglur
Grein 11 í lögum númer 97 frá árinu 2002 um atvinnuréttindi útlendinga
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun