Prentað þann 7. apríl 2026
1175/2021
Reglugerð um málsmeðferð vegna skipta á búi félaga samkvæmt lögum um ársreikninga.
I. KAFLI Tilgangur reglugerðar.
1. gr. Markmið
Reglugerð þessi mælir fyrir um meðferð mála hjá ársreikningaskrá þegar krafist er skipta á búi félags á grundvelli 1. mgr. 121. gr. laga nr. 3/2006. Tilgangur skipta skv. fyrrgreindri heimild er að stuðla að því að markmið framangreindra laga náist og að fullnægjandi ársreikningi eða samstæðureikningi verði skilað til ársreikningaskrár innan tilskilinna tímamarka.
2. gr. Félög sem falla undir reglugerð þessa.
3. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um félög sem skilgreind eru í 1. gr. laga nr. 3/2006 og ekki hafa skilað ársreikningi eða samstæðureikningi innan frests skv. 109. gr. laga nr. 3/2006 og 4. gr. þessarar reglugerðar.
Reglugerðin á einnig við um þau tilvik þegar ársreikningaskrá hefur komist að þeirri niðurstöðu að skýringar eða upplýsingar með ársreikningi eða samstæðureikningi félags sem lagður hefur verið fram til opinberrar birtingar hafi ekki verið fullnægjandi, skv. 3. mgr. 120. gr. laga nr. 3/2006, sbr. 5. gr. þessarar reglugerðar.
II. KAFLI Skilyrði skipta.
4. gr. Vanskil á ársreikningi.
Ársreikningaskrá skal krefjast skipta á búi félags, sem ekki hefur skilað ársreikningi eða samstæðureikningi innan sex mánaða frá því að frestur skv. 109. gr. laga nr. 3/2006 til skila á ársreikningi eða samstæðureikningi er liðinn.
5. gr. Ófullnægjandi skil.
Að sex mánuðum liðnum frá þeim tíma þegar ársreikningaskrá tilkynnti félagi um þá afstöðu að ársreikningur uppfyllti ekki ákvæði laga nr. 3/2006 og félag hefur ekki veitt fullnægjandi skýringar eða upplýsingar með ársreikningi eða samstæðureikningi að mati ársreikningaskrár, sbr. 3. mgr. 120. gr. laga nr. 3/2006, skal ársreikningaskrá krefjast skipta á búi félags.
Ef ákvörðun ársreikningaskrár, um að skýringar eða upplýsingar með ársreikningi eða samstæðureikningi hafi ekki verið fullnægjandi, er kærð til yfirskattanefndar skal miða upphaf frestsins skv. 1. mgr. við það tímamark þegar niðurstaða yfirskattanefndar liggur fyrir.
III. KAFLI Kostnaður af skiptum.
6. gr. Kostnaður.
Kostnaður af meðferð kröfu vegna skipta greiðist úr ríkissjóði.
IV. KAFLI Málsmeðferð ársreikningaskrár vegna skipta á búi félags.
7. gr. Frestir.
Við lok sex mánaða frests skv. 4. gr. og 1. og 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar, birtir ársreikningaskrá tilkynningu til viðkomandi félags, þar sem veittur er fjögurra vikna frestur til þess að skila ársreikningi eða eftir atvikum samstæðureikningi sem uppfyllir kröfur laga nr. 3/2006.
Ekki eru veittir frekari frestir af hálfu ársreikningaskrár.
8. gr. Tilkynning um fyrirhugaða kröfu um skipti.
Í tilkynningu samkvæmt 7. gr. skal skýrlega tekið fram hverjar afleiðingar það hafi, ef ekki verður orðið við kröfu ársreikningaskrár um skil fullnægjandi ársreiknings. Tilkynninguna skal birta í stafrænu pósthólfi félagsins, sbr. lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, og telst það ávallt nægileg birting. Þegar tilkynningin hefur verið birt í stafrænu pósthólfi félagsins telst hún birt viðtakanda.
9. gr. Krafa um skipti.
Að loknum þeim fjögurra vikna fresti sem veittur er félagi skv. 7. gr., sendir ársreikningaskrá viðkomandi héraðsdómi kröfu um að bú félags verði tekið til skipta.
Í kjölfarið skal ársreikningaskrá birta tilkynningu í stafrænu pósthólfi félagsins um að ákvörðun hafi verið tekin um að krefjast skipta, sbr. lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, og telst það ávallt nægileg birting. Þegar ákvörðunin hefur verið birt í stafrænu pósthólfi félagsins telst hún birt viðtakanda.
Krafa um skipti skal vera skrifleg og skal þar fylgja fyrirmælum 7. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991. Krafa um skipti og fylgigögn með henni skulu vera í tvíriti.
Dómari metur framlagða kröfu um skipti og tekur ákvörðun um meðferð hennar, í samræmi við ákvæði laga nr. 21/1991. Ef stjórnarmaður félags eða framkvæmdastjóri mætir til þinghalds getur dómari orðið við beiðni félags um allt að tveggja mánaða frest á meðferð kröfunnar.
V. KAFLI Málsmeðferð eftir móttöku héraðsdóms á kröfu um skipti.
10. gr.
Ef fullnægjandi ársreikningi og samstæðureikningi ef við á, er skilað til ársreikningaskrár eftir að krafa um skipti hefur verið send til héraðsdóms en áður en úrskurður um skipti er kveðinn upp, afturkallar ársreikningaskrá kröfuna.
V. KAFLI Gildistaka.
11. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 121. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.