Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 18. nóv. 2022

1014/2020

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/466 um tímabundnar ráðstafanir til að halda í skefjum áhættu fyrir heilbrigði manna og dýra og plöntuheilbrigði og velferð dýra við tiltekna alvarlega röskun á eftirlitskerfum aðildarríkjanna vegna kórónaveirufaraldursins (COVID-19).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/466 frá 30. mars 2020 um tímabundnar ráðstafanir til að halda í skefjum áhættu fyrir heilbrigði manna og dýra og plöntuheilbrigði og velferð dýra við tiltekna alvarlega röskun á eftirlitskerfum aðildarríkjanna vegna kórónaveirufaraldursins (COVID-19). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 47/2020, frá 3. apríl 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42, frá 25. júní 2020, bls. 191.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/714 frá 28. maí 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/466 að því er varðar notkun á rafrænum gögnum við framkvæmd opinbers eftirlits og annarrar opinberrar starfsemi og gildistíma tímabundinna ráðstafana. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2020, frá 18. júní 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62, frá 24. september 2020, bls. 228.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1087 frá 23. júlí 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/466 að því er varðar framkvæmd einstaklinga, sem hafa til þess sérstaka heimild á opinberu eftirliti og annarri opinberri starfsemi, framkvæmd greininga, prófana eða sjúkdómsgreininga og gildistíma tímabundinna ráðstafana. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120/2020, frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 29. október 2020, bls. 284.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1341 frá 28. september 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/466 að því er varðar gildistíma tímabundinna ráðstafana. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 150/2020, frá 23. október 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74, frá 12. nóvember 2020, bls. 34.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/83 frá 27. janúar 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/466 að því er varðar framkvæmd einstaklinga, sem hafa til þess sérstaka heimild, á opinberu eftirliti og annarri opinberri starfsemi og gildistíma tímabundinna ráðstafana. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2021, frá 3. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 8. apríl 2021, bls. 102.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/984 frá 17. júní 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/466 að því er varðar gildistíma ráðstafana. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2021, frá 9. júlí 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60, frá 16. september 2021, bls. 67.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 5. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur brott reglugerð nr. 450/2020.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.