Prentað þann 26. des. 2024
961/2018
Reglugerð um enduraðlögunarstyrk og ferðastyrk til umsækjanda um alþjóðlega vernd.
1. gr.
Þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hefur dregið umsókn sína til baka, hann fengið synjun um vernd og ákvörðun hefur verið tekin um aðstoð til sjálfviljugrar heimfarar í samstarfi við Útlendingastofnun, Alþjóðafólksflutningastofnunina (IOM) eða önnur sambærileg samtök er Útlendingastofnun heimilt að greiða honum ferðastyrk og/eða enduraðlögunarstyrk sem stuðla á að árangursríkri enduraðlögun einstaklingsins í heimaríki og styðja viðkomandi við að koma þar undir sig fótunum á nýjan leik.
Enduraðlögunarstyrkur er greiddur út að hluta í reiðufé og að hluta í enduraðlögunarverkefni sem umsækjandi getur nýtt til að fjármagna enduraðlögun sína í heimaríki. Styrkur til sérstakra enduraðlögunarverkefna getur nýst t.d. í húsaleigu, nám, atvinnu eða önnur verkefni í samstarfi við IOM eða önnur sambærileg samtök. Kjósi umsækjandi ekki að nýta styrkinn í sérstök enduraðlögunarverkefni getur hann óskað eftir því að fá hann greiddan í reiðufé. Ekki er heimilt að afhenda hærri fjárhæð í reiðufé en sem nemur helmingi af heildarupphæðinni eins og fram kemur í töflu fyrir neðan.
Ferða- og/eða enduraðlögunarstyrkur greiðist í samræmi við eftirfarandi töflu.
Flokkur | Ríki | Ferðastyrkur, til greiðslu á Keflavíkurflugvelli | Enduraðlögunarstyrkur greiddur í heimaríki, allt að | Heildarupphæð á hvern einstakling, allt að |
1.1 Fullorðinn | Afganistan Íran Írak Nígería Sómalía Palestína Pakistan | 200 evrur | 3.000 evrur (1.500 evrur í reiðufé) | 3.200 evrur (1.700 evrur í reiðufé) |
1.2 Barn | Afganistan Íran Írak Nígería Sómalía Palestína Pakistan | 100 evrur | 1.000 evrur | 1.100 evrur |
1.3 Fylgdarlaust barn | Afganistan Íran Írak Nígería Sómalía Palestína Pakistan | 200 evrur | 2.000 evrur (1.000 evrur í reiðufé) | 2.200 evrur (3.200 evrur í reiðufé) |
2.1 Fullorðinn | Önnur ríki (fyrir utan örugg upprunaríki) | 200 evrur | 2.000 evrur (1.000 evrur í reiðufé) | 2.200 evrur (1.200 evrur í reiðufé) |
2.2 Barn | Önnur ríki (fyrir utan örugg upprunaríki) | 100 evrur | 500 evrur | 600 evrur |
3 Fylgdarlaust barn | Önnur ríki (fyrir utan örugg upprunaríki) | 200 evrur | 2.000 evrur | 2.200 evrur |
Þegar sérstaklega stendur á og um er að ræða umsækjanda sem fellur utan töflunnar að ofan er Útlendingastofnun heimilt að veita styrk til greiðslu fargjalda til þess ríkis þar sem umsækjanda hefur áður verið veitt alþjóðleg vernd eða hefur löglega heimild til dvalar á öðrum grundvelli. Slíkur styrkur kæmi einkum til skoðunar í tilvikum barnafjölskyldna þar sem allir fjölskyldumeðlimir hafa óskað eftir styrk. Það sama getur átt við um einstaklinga sem taldir eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu að mati Útlendingastofnunar eða ef stofnunin telur umsækjanda af öðrum ástæðum hafa þörf fyrir sérstaka aðstoð í tengslum við flutning. Við mat á því hvort umsækjandi eigi rétt á styrk skal m.a. höfð hliðsjón af heilsufari og félagslegri stöðu umsækjanda.
Umsækjandi um alþjóðlega vernd getur óskað eftir ferða- og/eða enduraðlögunarstyrk samhliða því sem hann óskar eftir aðstoð við sjálfviljuga heimför. Beiðni um aðstoð við sjálfviljuga heimför og e.a. ferða- og/eða enduraðlögunarstyrk skal lögð fram innan þess frests sem umsækjanda hefur verið veittur til sjálfviljugrar heimfarar.
Útlendingastofnun hefur heimild til þess að greiða framangreinda styrki á meðan styrktarveitingin rúmast innan þeirra fjárheimilda sem stofnunin hefur. Þá á útlendingur eingöngu rétt á enduraðlögunarstyrk einu sinni.
Skilyrði fyrir greiðslu ferða- og/eða enduraðlögunarstyrks er að umsækjandi undirriti skuldaviðurkenningu hjá Útlendingastofnun þess efnis að hann samþykki að endurgreiða veittan styrk komi til þess að hann sæki síðar um dvalarleyfi hér á landi.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.