Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 5. des. 2025

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 20. sept. 2025 – 25. sept. 2025 Sjá núgildandi

860/2025

Reglugerð um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026.

I. KAFLI Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu leyfa til veiða í atvinnuskyni fer eftir 5. gr. laga um stjórn fiskveiða.

II. KAFLI Heildarafli, frádráttur og úthlutun.

2. gr. Úthlutun fiskveiðiársins 2025/2026.

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum, frádráttur sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og úthlutun Fiskistofu á grundvelli aflahlutdeildar fiskiskips í viðkomandi tegund er sem hér segir:

Tegund Ráðlagður heildarafli Frádrag vegna heimilda erlendra ríkja og annarra ráðstafana Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar
Blálanga 307 3 304 16 288
Djúpkarfi 0 0 0 0 0
Grálúða 20.992 9.166 11.826 627 11.199
Grásleppa 662 0 662 35 627
Gullkarfi 41.345 5.122 36.223 1.920 34.303
Gulllax 7.771 0 7.771 412 7.359
Hlýri 299 0 299 16 283
Humar 0 0 0 0 0
Keila 7.451 610 6.841 363 6.478
Langa 6.330 1.272 5.058 268 4.790
Langlúra 1.659 0 1.659 88 1.571
Litli karfi 683 0 683 36 647
Loðna 0 0 0 0 0
Rækja við Snæfellsnes 0 0 0 0 0
Sandkoli 253 0 253 13 240
Skarkoli 7.871 0 7.871 417 7.454
Skrápflúra 0 0 0 0 0
Skötuselur 226 0 226 12 214
Steinbítur 9.412 0 9.412 499 8.913
Ufsi 59.510 106 59.404 3.148 56.256
Úthafsrækja 4.537 0 4.537 240 4.297
Ýsa 78.918 1.606 77.312 4.098 73.214
Þorskur 203.822 2.437 201.385 10.673 190.712
Þykkvalúra/sólkoli 970 0 970 51 919

Aflamark í botnfiski miðast við slægðan fisk með haus nema í grásleppu, gullkarfa, litla karfa, gulllaxi og djúpkarfa sem miðast við óslægðan fisk. Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk.

3. gr. Úthlutun fiskveiðiársins 2025/2026 fyrir viðkomandi svæði.

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum fyrir viðkomandi svæði, frádráttur sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og úthlutun Fiskistofu á grundvelli aflahlutdeildar fiskiskips í viðkomandi tegund fyrir viðkomandi svæði er sem hér segir:

Tegund/Svæði Ráðlagður heildarafli Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar
͏͏Hörpudiskur: 40 40 2 38
Breiðasund 40 40 2 38
Hvammsfjörður 0 0 0 0
Rækja á grunnslóð: 0 0 0 0
Arnarfjörður 0 0 0 0
Ísafjarðardjúp 0 0 0 0
Skollakoppur (ígulker): 197 197 10 187
Svæði A 50 50 3 47
Svæði B 88 88 5 83
Svæði C 59 59 3 56
Brimbútur (sæbjúga): 0 0 0 0
Svæði A - Norður-Aðalvík 0 0 0 0
Svæði B - Vestfirðir, miðsvæði 0 0 0 0
Svæði C - Vestfirðir, suðursvæði 0 0 0 0
Svæði D - Utanverður Breiðafjörður 0 0 0 0
Svæði E - Faxaflói 0 0 0 0
Svæði F - Austurland, norðursvæði 0 0 0 0
Svæði G - Austurland, miðsvæði 0 0 0 0
Svæði H - Austurland, suðursvæði 0 0 0 0

4. gr. Úthlutun almanaksársins 2026.

Á árinu 2026 er leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum, frádráttur sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, ráðstöfun skv. 10. gr. b laga um stjórn fiskveiða og úthlutun Fiskistofu á grundvelli aflahlutdeildar fiskiskips í viðkomandi tegund er sem hér segir:

Tegund Ráðlagður heildarafli Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar
Íslensk sumargotssíld 0 0 0 0
Kolmunni 0 0 0 0
Makríll: 0 0 0 0
Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. 0 0 0 0
Til ráðstöfunar skv. 10. gr. b. laga nr. 116/2006. 0 0 0 0
Norsk-íslensk síld 0 0 0 0
Norður-Íshafsþorskur: 0 0 0 0
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Noregs. 0 0 0 0
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Rússlands. 0 0 0 0
Úthafskarfi 0 0 0 0

III. KAFLI Heimildir erlendra skipa til veiða.

5. gr. Heimildir fiskveiðiársins 2025/2026.

Veiðar erlendra skipa samkvæmt samningum í fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu 2025/2026 skulu háðar leyfum Fiskistofu. Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum í viðkomandi tegund er sem hér segir:

Tegund Ríki Leyfilegur heildarafli samkvæmt samningi Athugasemd
Loðna Færeyjar 0
Grænland 0
Noregur 0

6. gr. Heimildir almanaksársins 2026.

Veiðar erlendra skipa samkvæmt samningum í fiskveiðilandhelgi Íslands á almanaksárinu 2026 skulu háðar leyfum Fiskistofu.

IV. KAFLI Skiptimarkaður með aflamark.

7. gr.

Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta, sbr. 6. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark.

Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn aflamarks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Tilboðsfrestur og -skilmálar skulu birtast á vefsíðu Fiskistofu. Þegar tilboð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðsfrestur er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á vefsíðu sinni. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð.

Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður.

Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Við mat tilboða skal Fiskistofa, þar sem tilboð geta falið í sér mismunandi tegundir sem endurgjald, miða við meðalverð tegunda í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarna 30 daga eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðsgjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað.

Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu eða gullkarfa sem látið hefur verið í skiptum, er umfram það aflamark sem innheimta skal, er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði.

Óheimilt er að framselja aflaheimildir í makríl sem keyptar eru á skiptimarkaði.

Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga um stjórn fiskveiða.

V. KAFLI Skipting leyfilegs afla, úthlutun og útreikningur aflamarks.

8. gr. Úthlutun aflamarks/krókaaflamarks.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

Bátum, sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, skal úthlutað krókaaflamarki í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu, blálöngu, litla karfa, hlýra, grásleppu og gullkarfa á grundvelli krókaaflahlutdeildar þeirra. Um krókaaflahlutdeild og krókaaflamark gilda sömu reglur um útreikning, nýtingu og framsal og gilda um aflahlutdeild og aflamark nema kveðið sé á um annað í lögum eða reglugerð þessari.

9. gr. Slægingarstuðlar.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn með slægingarstuðli og þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila magni með slægingarstuðli fyrir þær tegundir sem tilgreindar eru í töflunni hér að neðan.

Tegund Slægingarstuðull
Þorskur 0,84
Ýsa 0,84
Ufsi 0,84
Grálúða 0,92
Skarkoli 0,92
Sandkoli 0,92
Skrápflúra 0,92
Langlúra 0,92
Þykkvalúra/sólkoli 0,92
Steinbítur 0,90
Keila 0,90
Skötuselur 0,90
Langa 0,80
Blálanga 0,80

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunarstuðulinn 3,4.

10. gr. Undirmálsafli og annar afli til aflamarks.

Þorskur styttri en 50 cm (27 cm hausaður) og ufsi styttri en 50 cm (31 cm hausaður), ýsa styttri en 45 cm (26,5 cm hausuð) og gull- og djúpkarfi styttri en 33 cm teljast að hálfu til aflamarks, enda fari afli undir áðurgreindum stærðarmörkum ekki yfir 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð. Undirmálsafla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni. Þó er heimilt að ákvarða magn undirmáls í gull- og djúpkarfaafla við endurvigtun í vinnsluhúsi. Skal gullkarfa og djúpkarfa sem þannig er flokkaður frá í vinnsluhúsi til ákvörðunar á magni undirmáls, haldið aðgreindum frá öðrum afla. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um afla sem flakaður er um borð í veiðiskipi. Hausaðan fisk skal mæla frá sporðsenda að gotrauf.

Komi afli í veiðarfæri skips, sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt, sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. Þennan afla er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem viðkomandi skip veiðir á fiskveiðiárinu og er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega.
  2. Aflinn sé seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og andvirði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins, sbr. lög um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.
  3. Heimildin skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. Ekki er heimilt að flytja ónýttar heimildir milli tímabilanna. Þó má miða ýsuafla sem fæst sem meðafli eða meðafla við grásleppuveiðar, við heimild fiskveiðiársins í heild, enda sé sá afli gerður upp í lok þess.

Um heimild til veiða umfram aflamark í einstökum fisktegundum sem skerðir aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega gilda ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða.

11. gr. Tímabil löndunar.

Afli fiskveiðiárs sem landað er 1. september 2025 eða síðar telst til fiskveiðiársins 2025/2026, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs. Afli almanaksárs sem landað er 1. janúar 2026 eða síðar innan ársins telst til almanaksársins 2026.

Sigli skip með eigin afla í tegundum, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs ef um er að ræða tegundir sem tilgreindar eru í 2. gr. og til þess almanaksárs ef um er að ræða tegundir sem tilgreindar eru í 4. gr. þá er skipið sannanlega hættir veiðum fyrir siglingu.

VI. KAFLI Framsal aflamarks og aflahlutdeildar.

12. gr. Framsal aflamarks.

Þegar fiskiskipi hefur verið úthlutað aflamarki, er heimilt að flytja aflamarkið á milli fiskiskipa enda leiði flutningurinn ekki til þess að veiðiheimildir skipsins verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Krókaaflamark verður aðeins flutt til báts, sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 4. gr. laga um stjórn fiskveiða.

Á hverju fiskveiðiári er heimilt að flytja af fiskiskipi 50% þess aflamarks sem skipi var úthlutað í þorskígildum talið á grundvelli verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Auk þess er heimilt að flytja frá skipi það aflamark í einstökum tegundum sem flutt hefur verið til skips. Heimilt er Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings á aflamarki vegna varanlegra breytinga á skipakosti útgerða eða þegar skip hverfur úr rekstri um lengri tíma vegna alvarlegra bilana eða sjótjóns.

Tilkynna skal Fiskistofu um flutning aflamarks á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Í tilkynningunni skulu koma fram upplýsingar um nöfn og skipaskrárnúmer þeirra skipa sem aflamark er flutt á milli og magn aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning.

Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs gerir, sbr. lög um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Telji Verðlagsstofa skiptaverðs að gildissvið laganna nái ekki yfir viðkomandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því.

Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða flutningsgjald fyrir hverja tilkynningu samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu. Gjalddagi reiknings er við útgáfu hans og eindagi 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til viðkomandi fiskiskips.

Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknareyðublöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutaðeigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar.

Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem framkvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óviðkomandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning aflamarks. Þjónustusamningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði vanskil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks.

Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á.

Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur.

13. gr. Flutningur aflahlutdeildar.

Beiðni um flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu fyrirfram og á því formi sem Fiskistofa gerir kröfu um, þ.m.t. með undirritun eiganda skips og vottun. Krókaaflahlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 6. gr. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókarvottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila:

  1. þeirra er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991,
  2. þeirra, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa,
  3. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.

Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.

Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mánaðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en tilgreint er í 13. gr. laga um stjórn fiskveiða. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

14. gr. Flutningur aflamarks til krókaaflamarksbáta og jöfn skipti.

Heimilt er að flytja til krókaaflamarksbáts aflamark í öðrum tegundum botnfisks en í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu, blálöngu, litla karfa, hlýra, grásleppu og gullkarfa. Einnig er heimilt að flytja aflamark í ufsa og þorski frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu. Jafnframt er heimilt að flytja aflamark í steinbít frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í þorski, ýsu og löngu.

15. gr. Skerðingar krókaaflamarks.

Veiði bátur aðrar tegundir en hann hefur krókaaflamark í, skal skerða aflamark hans í öðrum tegundum, skv. 1. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða og reglum settum samkvæmt þeim ákvæðum. Hverjum báti skal þó heimilt, sbr. 7. gr. laganna, án þess að til skerðingar komi, að veiða allt að 2,0% af heildarafla sínum í kvótabundnum botnfisktegundum, öðrum en þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu, blálöngu, litla karfa, hlýra, grásleppu og gullkarfa þó þannig að afli í einni tegund fari aldrei yfir 1% af heildarafla bátsins.

VII. KAFLI Veiðiskylda og veiðar í frístundum.

16. gr. Veiðiskylda.

Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. þorskígildisstuðlum. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna.

Tefjist skip frá veiðum í a.m.k. fjóra mánuði vegna tjóns, meiri háttar bilana eða endurbóta hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein.

17. gr. Veiðar í frístundum.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða, skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst.

VIII. KAFLI Ýmis ákvæði.

18. gr.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynningunni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kolmunna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni, skv. 4. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða innan og utan lögsögunnar.

Þorsk-, ýsu- og ufsaveiðar með hringnót eru bannaðar.

IX. KAFLI Viðurlög og gildistaka.

19. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla gilda ákvæði laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.

20. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Reglugerð nr. 817/2024, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025 fellur úr gildi 1. janúar 2026. Reglugerð nr. 818/2024, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2024/2025 og reglugerð nr. 819/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025 falla úr gildi 1. september 2025.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.