Prentað þann 25. nóv. 2024
835/2015
Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbanon.
1. gr. Almenn ákvæði.
Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:
- ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
- ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
- ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.
Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
2. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:
1. | Sameiginleg afstaða ráðsins 2006/625/SSUÖ frá 15. september 2006 um bann við sölu eða afhendingu vopna og tengdra hergagna og við því að veita rekstrareiningum eða einstaklingum í Líbanon tengda þjónustu, í samræmi við ákvæði ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1701 (2006), fylgiskjal 1. | ||
1.2 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.2. | ||
2. | Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1412/2006 frá 25. september 2006 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Líbanon, fylgiskjal 2. | ||
2.1 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.1. | ||
3. | Sameiginleg afstaða ráðsins 2005/888/SSUÖ frá 12. desember 2005 um tilteknar þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum sem grunaðir eru um aðild að morðinu á Rafiq Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons, fylgiskjal 4. | ||
4. | Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 305/2006 frá 21. febrúar 2006 um að leggja á tilteknar þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum sem eru grunaðir um aðild að morðinu á Rafiq Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons, fylgiskjal 5. | ||
4.1 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 4.1. |
Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.
3. gr. Aðlögun.
Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:
- ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
- ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
- tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
- tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
- tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
- vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir
4. gr. Tilkynning.
Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.
5. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð.
Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.
6. gr. Viðurlög.
Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.
7. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Líbanon nr. 120/2009.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.