Prentað þann 25. des. 2024
415/2014
Reglugerð um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
1. gr. Gildistaka tiltekinna EES-gerða.
Eftirfarandi reglugerðir sem vísað er til í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 frá 16. desember 2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem breytir og kemur í stað tilskipana 67/548/EBE og 1999/45/EB, og breytir reglugerð (EB) nr. 1907/2006, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2012, 15. júní 2012, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 20. september 2012, 2012/EES/52/01, bls. 1-1355.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 790/2009 frá 10. ágúst 2009 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga reglugerðina að tæknilegum og vísindalegum framförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2012, 15. júní 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38 frá 5. júlí 2012, 2012/EES/38/09, bls. 102-540.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 440/2010 frá 21. maí 2010 um gjöld til Evrópsku efnastofnunarinnar í samræmi við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna, sem vísað er til í tölulið 12zzf, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2012, þann 15. júní 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 27. september 2012, 2012/EES/54/57, bls. 556-560.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 286/2011 frá 10. mars 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tækniframförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2012, 15. júní 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59 frá 18. október 2012, 2012/EES/59/38, bls. 527-579.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 618/2012 frá 10. júlí 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 Evrópuþingsins og ráðsins um flokkun, merkingu og umbúðir efna og blandna í því skyni að aðlaga hana að tækni- og vísindalegum framförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2013, þann 1. febrúar 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 14. mars 2013, 2013/EES/16/49, bls. 236-243.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 758/2013 frá 7. ágúst 2013 um leiðréttingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2014, þann 4. apríl 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, 2014/EES/23/36, bls. 262-319.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 944/2013 frá 2. október 2013 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, í þeim tilgangi að aðlaga reglugerðina að tæknilegum og vísindalegum framförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2014, þann 4. apríl 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, 2014/EES/23/31, bls. 233-250.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 487/2013 frá 8. maí 2013 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga reglugerðina að framförum í tækni og vísindum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2014, þann 27. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, 2014/EES/54/45, bls. 390-448.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 605/2014 frá 5. júní 2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að innleiða hættusetningar og varnaðarsetningar á króatísku og til að laga hana að framförum á sviði tækni og vísinda, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2015, þann 25. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 19. mars 2015, 2015/EES/16/44, bls. 858-871.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1297/2014 frá 5. desember 2014 um breytingu á reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga reglugerðina að framförum á sviði tækni og vísinda, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 23. apríl 2015, 2015/EES/23/65, bls. 804-806.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/491 frá 23. mars 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 605/2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að innleiða hættusetningar og varnaðarsetningar á króatísku og til að laga hana að framförum á sviði tækni og vísinda, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2015, þann 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 860-861.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1221 frá 24. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna í því skyni að aðlaga hana að framförum í vísindum og tækni, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 303/2015, þann 11. desember 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 28. janúar 2016, bls. 715-728.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1179 frá 19. júlí 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna í því skyni að aðlaga hana að framförum í vísindum og tækni, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2016, þann 23. september 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 1929-1943.
2. gr. Lögbært stjórnvald.
Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs stjórnvalds sbr. 43. gr. reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sbr. 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar.
3. gr. Upplýsingar til eitrunarmiðstöðvar.
Eitrunarmiðstöð Landspítala skal taka við upplýsingum frá innflytjendum og eftirnotendum um efnablöndur í samræmi við 45. gr. reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, sbr. 1. mgr. 2. gr.
4. gr. Merkingar á umbúðum.
Merkingar á umbúðum efna og efnablandna skulu vera á íslensku.
Þó mega merkingar innfluttra vara bera upprunalegar merkingar á ensku, dönsku, norsku eða sænsku ef:
- rúmmál innfluttrar vörutegundar er undir 125 ml og fellur undir lið 1.5.2.1. í I. viðauka í reglugerð (EB) nr. 1272/2008, sbr. 1. mgr. 2. gr. eða
- vara er eingöngu ætluð til notkunar á rannsóknastofum, við raungreinakennslu í skólum eða öðrum hliðstæðum tilgangi þar sem ætla má að notendur vöru skilji erlendar merkingar.
5. gr. Eftirlit.
Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla efnalaga nr. 61/2013. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með meðferð, notkun og merkingum efna í starfsleyfisskyldri starfsemi sem heyrir undir þau starfsleyfi sem nefndin gefur út á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, sbr. 1. mgr. 6. gr. efnalaga.
6. gr. Þvingunarúrræði.
Um þvingunarúrræði samkvæmt reglugerð þessari fer samkvæmt XIII. kafla efnalaga.
7. gr. Viðurlög.
Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt XIV. kafla efnalaga.
8. gr. Innleiðing tiltekinna EES-gerða.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 frá 16. desember 2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem breytir og kemur í stað tilskipana 67/548/EBE og 1999/45/EB, og breytir reglugerð (EB) nr. 1907/2006.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 790/2009 frá 10. ágúst 2009 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga reglugerðina að tæknilegum og vísindalegum framförum.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 440/2010 frá 21. maí 2010 um gjöld til Evrópsku efnastofnunarinnar í samræmi við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 286/2011 frá 10. mars 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tækniframförum.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 618/2012 frá 10. júlí 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 Evrópuþingsins og ráðsins um flokkun, merkingu og umbúðir efna og blandna í því skyni að aðlaga hana að tækni- og vísindalegum framförum.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 758/2013 frá 7. ágúst 2013 um leiðréttingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 944/2013 frá 2. október 2013 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, í þeim tilgangi að aðlaga reglugerðina að tæknilegum og vísindalegum framförum.
9. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 866/2012 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.