Prentað þann 15. des. 2025
327/2003
Reglugerð um endurgreiðslu almenns og sérstaks vörugjalds af bensíni til sendimanna erlendra ríkja.
1. gr.
Erlend sendiráð og sendierindrekar (diplomatic agents) skulu fá endurgreitt almennt og sérstakt vörugjald af bensíni vegna bifreiða í þeirra eigu.
2. gr.
Til þess að hljóta endurgreiðslu skv. 1. gr. verður bifreið að vera á sérstökum skráningarmerkjum fyrir ökutæki erlendra sendiráða og erlendra sendiráðsmanna, sbr. 20. gr. reglugerðar nr. 78/1997, um skráningu ökutækja, með síðari breytingum.
3. gr.
UmsóknUtanríkisráðuneytið afgreiðir beiðni um endurgreiðslu. Beiðni skal beinafylgja tilfumrit utanríkisráðuneytisinsþeirra og fylgi umsókn frumrit af þeim reikningumreikninga sem endurgreiðslubeiðni er byggð á. EftirUtanríkisráðuneytið að utanríkisráðuneytið hefur gengiðgengur úr skugga um að í hlut eigi aðilar er undir reglurnar falla sendirog það fjármálaráðuneytinuað endurgreiðslubeiðni ásamtuppfylli þeimskilyrði reikningumreglugerðar þessarar. Frumrit samþykktrar beiðni er umsókn fylgja. Að lokinni endurskoðun sendir fjármálaráðuneytið reikningasend til viðkomandiFjársýslu sendiráðsríkisins meðsem áritunannast endurgreiðslu. Afrit samþykktrar endurgreiðslubeiðni er send til umsækjanda ásamt frumriti reikninga.
Ekki verður um endurgreiðslu enað sendirræða nema heildarfjárhæð hvers einstaks reiknings nemi a.m.k. 7.000 kr. með virðisaukaskatti. Utanríkisráðuneytið skal heimila endurgreiðslu innsendra reikninga vegna fastra mánaðarlegra reikningsviðskipta nái heildarfjárhæð slíkra reikninga a.m.k. 7.000 kr. með virðisaukaskatti.
Utanríkisráðuneytið skal afgreiða beiðnir um endurgreiðslu 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember ár hvert.
Reikningar þeir sem endurgreiðslubeiðni tiler ríkisféhirðisbyggð tilá afgreiðsluskulu vera greiddir. Til staðfestingar á greiðslu skal greiðslukvittun fylgja greiddum reikningum.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 6. og 148. gr. tollalaga, nr. 55/1987, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 27. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum, og 28. gr. laga nr. 29/1993 og öðlast gildi þegar í stað.
Fjármálaráðuneytinu, 29. apríl 2003.
F. h. r. Maríanna Jónasdóttir.
Telma Halldórsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.