Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 16. mars 2021 – 8. maí 2021 Sjá núgildandi

182/2021

Reglugerð um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski árið 2021 innan efnahagslögsögu Rússlands.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til framkvæmdar samnings milli Íslands, Noregs og Rússlands frá 3. febrúar 2021 um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs ásamt tvíhliða bókunum við hann frá sama degi milli Íslands og Noregs annars vegar og Íslands og Rússlands hins vegar.

2. gr.

Allar veiðar á Norðuríshafsþorski innan efnahagslögsögu Rússlands eru háðar sérstöku leyfi Fiskistofu. Veiðar á Norðuríshafsþorski, skv. þessari reglugerð, eru aðeins heimilar innan efnahagslögsögu Rússlands og miðast leyfi Fiskistofu við nýtingu þessara veiðiheimilda. Aðeins þau skip, sem hafa aflamark í Norðuríshafsþorski, á árinu 2021, eiga kost á veiðileyfi, samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr.

Fiskistofa skal úthluta aflamarki í þorski til einstakra skipa í efnahagslögsögu Rússlands. Aflamark einstaks skips á svæðinu ræðst af aflahlutdeild þess.

4. gr.

Innan efnahagslögsögu Rússlands, utan 12 sjómílna frá grunnlínum, er leyfilegur heildarafli í óslægðum þorski sem hér segir:

A B C
Tonn Tonn Tonn
5.050 268 4.782
  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

Við úthlutun skal hverju skipi ætluð aflaheimild í ýsu sem nemur 8% af hluta þess í leyfilegum heildarafla í þorski, sbr. 1. mgr. Að auki er heimilt við þessar þorskveiðar að hafa allt að 22% meðafla í öðrum tegundum, miðað við afla upp úr sjó.

Jafnframt hafa íslensk skip heimildir til veiða á 3.031 tonni af þorski enda komi sérstakt gjald fyrir. Við slíka úthlutun skal hverju skipi jafnframt ætluð aflaheimild í ýsu sem nemur 10% af hluta þess í keyptum heildarafla. Að auki er heimilt við þessar þorskveiðar að hafa allt að 20% meðafla í öðrum tegundum, miðað við afla upp úr sjó.

Innan efnahagslögsögu Rússlands, utan 12 sjómílna frá grunnlínum má karfi ekki vera nema 20% í hverju togi og ekki meira en 20% af lönduðum þorskafla, grálúða má ekki vera meira en 12% í hverju togi og ekki meira en 7% af lönduðum þorskafla. Ufsi, steinbítur og hlýri mega ekki vera meira en 49% af lönduðum þorskafla.

5. gr.

Um veiðar í efnahagslögsögu Rússlands fer samkvæmt reglum, sem settar eru af stjórnvöldum í Rússlandi, m.a. varðandi eftirlitsmenn um borð í veiðiskipum, svæðalokanir, möskvastærðir og tilkynningar. Íslenskum skipum er óheimilt að stunda loðnuveiðar í Barentshafi.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar í efnahagslögsögu Rússlands sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að hefja veiðiferð í efnahagslögsögu Rússlands, fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest við skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

6. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark í Norðuríshafsþorski milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt 12. gr. og 15. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða án tillits til 11. gr. og 5. og 7. mgr. 15. gr. laganna. Heimilt er útgerð að óska eftir við Fiskistofu að meðaflaheimild í ýsu í rússneskri efnahagslögsögu skv. 4. mgr. 4. gr. færist sérstaklega á milli skipa. Fiskistofa tilkynnir rússneskum stjórnvöldum um tilfærsluna og tekur hún ekki gildi fyrr en með staðfestingu Fiskistofu.

7. gr.

Veiðiheimildir íslenskra skipa í rússneskri efnahagslögsögu sem aflað er umfram þær aflaheimildir sem úthlutað er skv. 3. gr., þ.m.t. heimildir sem sérstakt gjald kemur fyrir, skal tilkynna Fiskistofu ásamt staðfestingu frá rússneskum stjórnvöldum og er óheimilt að stunda þær veiðar fyrr en Fiskistofa hefur staðfest heimildina með tilfærslu aflaheimilda og útgáfu veiðileyfis.

8. gr.

Að fengnu leyfi Fiskistofu er heimilt í sömu veiðiferð að stunda veiðar á Norðuríshafsþorski og veiðar innan íslenskrar efnahagslögsögu að því tilskildu að öllum afla þeirrar veiðiferðar sé landað í íslenskri höfn. Fyrir upphaf hverrar veiðiferðar, skv. reglugerð þessari, skal skipstjóri tilkynna sérstaklega til Eftirlitsstöðvarinnar hvenær veiðiferð hefst. Þá skal tilkynna til Eftirlitsstöðvarinnar þegar veiðar hefjast innan efnahagslögsögu Rússlands, og þegar þeim lýkur hverju sinni. Þar skal koma fram áætlað magn og samsetning afla um borð, miðað við afla upp úr sjó, og áætlaður löndunarstaður og -tími. Sama gildir ef skip flytur sig milli efnahagslögsögu Rússlands og efnahagslögsögu Noregs.

Um veiðar í efnahagslögsögu Rússlands skal hvern mánudag tilkynna Eftirlitsstöðinni um heildarafla síðustu viku miðað við afla upp úr sjó, þ.e. frá upphafi síðasta mánudags til loka síðasta sunnudags, sundurliðað eftir tegundum og veiðisvæðum.

Sé skip á veiðum í rússneskri lögsögu skal Eftirlitsstöðinni tilkynnt daglega um afla síðastliðins dags. Á sama hátt skal á ellefta degi tilkynnt um uppsafnaðan afla síðstu 10 daga og á þrítugasta og fyrsta degi veiða skal Eftirlitsstöðinni tilkynnt um uppsafnaðan afla síðustu 30 daga.

Skipstjórum er skylt að halda afladagbækur, sbr. reglugerð um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga nr. 298/2020. Sérstök afladagbók fyrir veiðar í efnahagslögsögu Rússlands skal varðveitast í tvö ár um borð í veiðiskipi.

9. gr.

Heimilt er, að fengnu leyfi Fiskistofu, að landa afla í höfnum í Rússlandi, enda séu skilyrði Fiskistofu um eftirlit með vigtun og skýrsluskil uppfyllt. Sækja skal um leyfi til löndunar í rússneskum höfnum til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina hvar hann hyggst landa aflanum ásamt áætluðu magni. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri senda Fiskistofu staðfest afrit af vigtarnótu. Reglugerð um vigtun sjávarafla á við að öðru leyti.

Þegar afli er unninn um borð í veiðiskipi skal við útreikning á veiddum afla ekki miða við mælda nýtingu um borð í veiðiskipi heldur nýtingarstuðla, sem gefnir eru út af viðkomandi stjórnvöldum í Rússlandi.

Þegar Norðuríshafsþorskur reiknast til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 1.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt III. kafla laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 180/2020, um veiðar íslenskra skipa á Norðuríshafsþorski árið 2020 innan efnahagslögsögu Rússlands.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.