Mannúðarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar
Réttindi og skyldur
Dvalarleyfi af mannúðarástæðum vegna fjöldaflótta er að hámarki veitt til eins árs.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður.
Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði. Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.
Réttur til að vinna
Dvalarleyfinu fylgir heimild til að vinna án atvinnuleyfis.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfi af mannúðarástæðum veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar fyrr en eftir að það hefur verið endurnýjað tvisvar sinnum.
Það má veita undanþágu frá þessu skilyrði ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða.
Dvalarleyfi af mannúðarástæðum veitir handhafa rétt til fjölskyldusameiningar við
maka,
börn sín yngri en 18 ára, ef handhafi hefur forsjá þeirra,
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Fyrstu fimm árin myndar mannúðarleyfi vegna fjöldaflótta ekki grundvöll fyrir ótímabundið dvalarleyfi.
Að fimm árum liðnum er heimilt að veita mannúðarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Að liðnu einu ári með slíkt leyfi er heimilt að gefa út ótímabundið dvalarleyfi.
Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun