Löggilding rafverktaka
Svipting löggildingar
HMS getur svipt rafverktaka löggildingu ef öryggisstjórnun hans fullnægir ekki lögum og reglum á rafmagnsöryggissviði.
Ástæða sviptingar getur meðal annars verið að skoðun öryggisstjórnunarkerfis rafverktaka sýnir verulega ágalla.
Helstu ástæður fyrir skoðun öryggisstjórnunarkerfa eru:
Ábendingar berast um slæman frágang raflagna.
Úrtaksskoðanir sýna fjölda athugasemda.
Endurskoðanir sýna að gerðar athugasemdir hafa ekki verið lagfærðar.
Rafverktaki lýkur ekki við verk sem hann hefur tekið að sér.
Rafverktaki sinnir ekki fyrirmælum HMS.
Ákvörðun um leyfissviptingu er send viðkomandi í ábyrgðarbréfi eða með öðrum tryggilegum hætti.
Leyfissviptingu má vísa til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, samkvæmt 11. gr. í lögum um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun