Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Öryggisstjórnunarkerfi fyrir rafverktaka

Löggiltur rafverktaki á að fylgja reglugerð um raforkuvirki, fyrirmælum HMS og öðrum gildandi lögum og reglum í störfum sínum. Samkvæmt því verður rafverktaki að koma sér upp skilgreindu öryggisstjórnunarkerfi samkvæmt verklagsreglu 3.010 um öryggisstjórnun rafverktaka þannig að tryggt sé að starfsemi hans sé samkvæmt reglum. Öll gögn eru geymd í miðlægri rafmagnsöryggisgátt.

Tilkynningar

Rafverktakar eiga að tilkynna eftirfarandi:


Að verki loknu þarf að skila skýrslum eins og við á:


Sjá nánar um tilkynningarskyld verk.

Verkskráning og geymsla gagna

Skrá þarf verk og geyma gögn þannig að hægt sé að rekja öll verk að minnsta kosti síðustu 4 ár. Rafverktaki þarf að geta sýnt yfirlit yfir verk sín og lýsingu á verkþáttum ef óskað er eftir.

Helstu gögn sem þarf að vista eru:

  • Allar tilkynningar til HMS.

  • Rafverktakaskipti, staðgengil og skýrslu (lokatilkynningu) um neysluveitu eða háspennt eða lágspennt raforkuvirki.

  • Yfirlit um verk í vinnslu, bæði tilkynningarskyld og ótilkynningarskyld.

  • Yfirferð rafverktaka á eigin vegum og öllum verkum sem unnin eru á hans ábyrgð.

  • Mælingar og niðurstöður mælinga.

  • Skýrslur um skoðanir faggiltra skoðunarstofa og athugasemdir.

  • Skýrslur um lokayfirferðir rafverktakans á eigin verkum.

  • Vottorð og skjöl um löggildingu rafverktakans.

  • Bréf og önnur fyrirmæli HMS.

  • Tæknilegar upplýsingar um mælitæki.

Ef athugasemdir eru á skýrslum þarf rafverktaki að lagfæra þær innan gefins frests og staðfesta, til dæmis með áritun á skýrsluna.

Yfirferð eigin verka

Rafverktaki verður að hafa eftirlit með allri vinnu sem unnin er í hans nafni þar sem hann ber ábyrgð á framkvæmd hennar. Rafverktaki þarf að yfirfara öll sín verk á meðan þau eru í vinnslu (til dæmis huldar lagnir), við rafverktakaskipti og við verklok. Þetta gildir bæði um tilkynningarskyld verk og önnur.

Við yfirferð skal rafverktaki fylgja reglugerð um raforkuvirki og verklags- og skoðunarreglum HMS.

Rafverktakinn gerir mælingar sem farið er fram á og skráir niðurstöður.


Við yfirferðina er hægt að nota eyðublöðin:


Að lokinni yfirferð metur rafverktaki hvort verkið sé tilkynningarskylt eða ekki og skráir niðurstöður matsins. Verk á háspennusviði sem A-löggildingarhafi tekur að sér á almennum markaði á alltaf að tilkynna.


Sjá nánar um tilkynningarskyld verk.

Aðstaða og búnaður

Rafverktaki þarf að ráða yfir aðstöðu fyrir starfsemi sína sem er viðurkennd af Vinnueftirliti ríkisins. Rafverktaki skal framvísa vottorði Vinnueftirlits ríkisins um að aðbúnaður hans sé samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum sé þess óskað.

Reglugerðir og fyrirmæli sem rafverktaka ber að eiga

Tæki og annar búnaður

Rafverktaki þarf að ráða yfir öllum mælitækjum sem hann þarfnast vegna starfsemi sinnar. Við skoðun á öryggisstjórnunarkerfi sínu þarf rafverktaki að leggja þau fram ásamt tæknilegum upplýsingum framleiðanda. Rafverktaki skal alltaf sjá til þess að mælitækin séu í góðu lagi og þeim vel við haldið.

Ef rafverktaki getur ekki gert nauðsynlegar mælingar með þeim mælitækjum sem honum er gert að eiga skal hann gera ráðstafanir til þess að þær mælingar fari fram.

Tæki fyrir lágspennu (B og CB)

  • Einangrunarmælir með 500 V útgangsspennu og mæligildi að minnsta kosti 0–10 MΩ. Mælirinn skal uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 61557-2 þar sem fram kemur að við mæligildi 470 kΩ á útgangsspennan að vera ≥ 470 V.

  • Hringrásarviðnámsmælir fyrir að minnsta kosti 400 V kerfi. Mælirinn skal uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 61557-3.

  • A-V mælir af nákvæmnisflokki 3, með mælisvið að minnsta kosti 5A AC og mæligildi við 230 og 400 VAC. Mælirinn skal uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 61010-1 eða ÍST EN 60051-2 (hliðrænir mælar).

  • Viðnámsmælir af nákvæmnisflokki 3, með mæligildi við 0,1 Ω. Mælirinn skal uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 61010-1 eða ÍST EN 60051-6 (hliðrænir mælar).

  • Ampertöng af nákvæmnisflokki 3, með mælisvið að minnsta kosti 0-300 A AC. Ampertöngin skal uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 61010-1 eða ÍST EN 60051-2 (hliðrænir mælar).

  • Hitastigsmælir af nákvæmnisflokki 3, með mælisvið að minnsta kosti 20-150 C.

  • Bilunarstraumsrofa-prófunartæki, með mælisvið 30 mA - 0,5 A að minnsta kosti. Tækið skal vera fyrir 400 V kerfi hið minnsta og með því skal vera hægt að mæla spennuhækkun eða útleysitíma í bilunartilvikum. Tækið skal uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 61557-6.

  • Spennuprófari (tvípóla) með öryggishandföngum, fyrir 400 V kerfi hið minnsta. Spennuprófarinn skal uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 61243-3 og vera af mæliflokki III (CAT III) að minnsta kosti.

Tæki fyrir háspennu (A og CA)

Auk ofangreindra tækja þarf að eiga eftirfarandi tæki:

  • Fjarlægðarmælir, mælisvið 2–20 m að minnsta kosti.

  • Sjónauki.

  • Spennukanna fyrir 15 kV að minnsta kosti eða eins háa spennu og viðkomandi aðili vinnur við, þar sem spenna verður ekki könnuð með öðrum búnaði.

  • Jarðtengitæki fyrir 10 kV að minnsta kosti eða þann straumstyrk og spennu sem viðkomandi aðili vinnur við. Einangruð stöng fyrir 15 kV að minnsta kosti, eða eins háa spennu og viðkomandi aðili vinnur við, fylgi jarðtengitækjunum.

  • Háspennuhanskar fyrir 10 kV að minnsta kosti, með ytri hlífðarhönskum (þarf að endurnýja í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda)

  • Öryggishjálma með andlitshlíf (þarf að endurnýja í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda).

  • Nauðsynlegar viðvörunarmerkingar til nota við vinnu.

Þjónustuskyldur

Rafverktaki verður að hafa síma þannig að auðvelt er að ná í hann. Fyrirtæki rafverktaka skal vera skráð hjá HMS.

Breytingar á starfsemi

Rafverktaki á að tilkynna HMS um allar breytingar sem verða á skyldum sem varða löggildingu hans, til dæmis breytt heimilisfang rafverktaka eða fyrirtækis, breytt símanúmer eða viðbótarnúmer. Ef rafverktaki skiptir um aðstöðu (verkstæði) á hann að gæta þess að fyrir liggi í gögnum hans nýtt vottorð Vinnueftirlitsins. Einnig þarf rafverktaki að gæta þess að fyrir liggi í gögnum hans upplýsingar um ný mælitæki sem hann eignast.

Undirverktakar

Rafverktaki er í öllu ábyrgur fyrir verkum allra sem vinna á hans vegum, jafnt eigin starfsmanna sem og undirverktaka.

Fjarvera verktaka (staðgengill)

Ef fjarvera rafverktaka veldur því að hann geti ekki uppfyllt þjónustuskyldur sínar ber honum að tilkynna HMS fjarveru sína með þar til gerðu eyðublaði og ráða til sín staðgengil, viðurkenndan af HMS, eða leggja fram tilvísun á annan löggiltan rafverktaka sem undirrituð er af báðum aðilum.

Rafverktaka

Rafverktaki sem hefur tekið að sér verk með tilkynningu um rafverktöku, eða með þjónustubeiðnum til viðkomandi rafveitu, ber ábyrgð á viðkomandi veitu þar til lokatilkynningu hefur verið skilað og móttökukvittun liggur fyrir eða þar til rafverktakaskipti hafa farið fram. Rafverktaki á að fylgjast með framvindu verkanna sem hann hefur tekið að sér og gera viðeigandi ráðstafanir gerist þess þörf.

Rafverktakaskipti

Rafverktakaskipti geta orðið annað hvort að ósk eiganda neysluveitu eða rafverktaka. Tilkynna þarf rafverktakaskipti á sérstöku eyðublaði. Við rafverktakaskipti skal þess sérstaklega gætt að allir viðkomandi aðilar (eigandi eða umráðamaður neysluveitu, fráfarandi rafverktaki og viðtakandi rafverktaki) undirriti eyðublaðið.

Rafverktakar og eigandi neysluveitu skulu gera með sér samkomulag um verktakaskiptin og sá rafverktaki sem tekur við verkinu tekur á sig alla faglega ábyrgð á því. Fráfarandi rafverktaki skal fara yfir verk sín við rafverktakaskipti.

Ef ágreiningur rís á milli viðkomandi aðila, sem ekki er hægt að sætta, skal málum vísað til HMS til úrskurðar.

Ábyrgð vegna smávirkjana og einkarafstöðva

Verkskráning

Rafverktaki sem tekur að sér að vera ábyrgðarmaður fyrir smávirkjun eða einkarafstöð á að skrá sérstaklega alla þjónustu vegna hennar í verkskrá sína.

Skjalageymsla

Gögn vegna ábyrgðar rafverktaka á smávirkjun eða einkarafstöð eiga að vera geymd í skjalavistunarkerfi hans.

Helstu gögn sem rafverktaki þarf að geyma eru:

Vinnuferlar

Ábyrgðarmaður smávirkjunar og einkarafstöðvar skal skilgreina og skjalfesta vinnuferla vegna tengingar við kerfi rafveitu. Þetta getur verið hluti af samningi við rafveitu.

Innri úttektir á öryggisstjórnunarkerfi rafverktaka

Rafverktaki lætur framkvæma innri úttekt á öryggisstjórnunarkerfi sínu að minnsta kosti einu sinni á ári. Hér má sjá dæmi um eyðublað.

Atriði sem þarf meðal annars að hafa í huga:

  • Er löggildingarskírteini aðgengilegt?

  • Hafa breytingar á skráningu verið tilkynntar HMS?

  • Eru tæki og annar búnaður, ásamt tilheyrandi gögnum, til staðar og í lagi?

  • Eru reglur og fyrirmæli aðgengileg og við haldið?

  • Eru eyðublöð og önnur gögn um verk vistuð skipulega?

  • Er flokkun verka í tilkynningarskyld og ekki tilkynningarskyld verk í samræmi við

    verklagsreglur um tilkynningarskyld verk?

  • Er framgangur eðlilegur? Hefur vinna við verk legið niðri? Þurfa að fara fram rafverktakaskipti?

  • Eru öll verk yfirfarin og yfirferðareyðublöð vistuð?

  • Er búið að tilkynna öll verk og verkhluta sem lokið er?

  • Eru skoðunarskýrslur skoðunarstofa vistaðar?

  • Hafa athugasemdir við verk verið lagfærðar?

  • Eru tíð frávik milli yfirferðar rafverktaka á eigin verkum og skoðunarskýrslu skoðunarstofu og ef svo er hefur verið brugðist við?

Sjá öll lög, reglugerðir og fyrirmæli á rafmagnsöryggissviði.