Réttur til að kalla sig kennara og starfa sem slíkur hér á landi er skilgreindur í lögum um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Leyfisbréf, sem er staðfesting á réttindum til kennslu og til að bera starfsheitið kennari, og gefin eru út eftir 1.1.2020 eru aðgengileg með rafrænum skilríkjum á Mínum síðum.
Leyfisbréf sem gefin hafa verið út fyrir þann tíma eru ekki aðgengileg að svo stöddu á Mínum síðum. Sé þörf á að afriti af áður útgefnu starfsleyfi er hægt að óska eftir því hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu með því að senda tölvupóst á netfangið mrn@mrn.is.
Mennta- og barnamálaráðuneytið annast útgáfu leyfisbréfa til kennara og veitir nánari upplýsingar um þau. Nú er gefið út eitt leyfisbréf þvert á skólastig leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Sótt er um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki.
Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið