Fara beint í efnið

Endurveiting íslensks ríkisfangs

Norrænir ríkisborgarar

Tilkynning um endurveitingu til norræns ríkisborgara

Danskur, finnskur, norskur eða sænskur ríkisborgari, sem áður var íslenskur ríkisborgari, getur að ákveðnum skilyrðum uppfylltum fengið íslenskt ríkisfang að nýju með því að óska eftir því við Útlendingastofnun.

Fái einstaklingur íslenskt ríkisfang veitt að nýju, öðlast ógift börn hans undir 18 ára aldri einnig íslenskt ríkisfang, ef hann hefur forsjá þeirra og þau eiga lögheimili hér á landi.

Skilyrði endurveitingar til norræns ríkisborgara

  • Umsækjandi skal hafa verið íslenskur ríkisborgari fyrir veitingu norræns ríkisfangs,

  • verið óslitið ríkisborgari í norrænu ríki og

  • hafa lögheimili hér á landi þegar tilkynningin er lögð fram.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar. Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 13.500 krónur, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds. Umsókn er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist.

Afgreiðslutími

Hægt er að fylgjast með því hvaða umsóknir hafa verið teknar til vinnslu á síðunni staða mála og afgreiðslutími dvalarleyfa.

Fylgigögn

Sjá nánari leiðbeiningar varðandi kröfur til skjala. Ekki þarf vottun á íslensk vottorð.

  1. Umsókn í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.

  2. Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá. Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum umsækjandi hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.

  3. Afrit úr vegabréfi.

  4. Staðfest afrit af frumriti fæðingarvottorðs. Frumritið skal vera vottað með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af því staðfest afrit.

  5. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á fæðingarvottorði. Á aðeins við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.

  6. Gögn um veitingu núverandi erlends ríkisfangs.

Fylgigögn umsókna fyrir börn

Viðbótargögn fyrir umsækjanda, sem sækir einnig um að barn hans yngra en 18 ára hljóti ríkisborgararétt með foreldri.

  1. Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá. Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum umsækjandi hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.

  2. Afrit úr vegabréfi barns.

  3. Staðfest afrit af frumriti fæðingarvottorðs barns. Frumritið skal vera vottað með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af því staðfest afrit.

  4. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á fæðingarvottorði barns. Þetta á við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli.

  5. Forsjárgögn. Á aðeins við ef annað foreldri fer með forsjá barns. Frumrit gagna skulu vera vottuð með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af þeim staðfest afrit. Ef gögnin eru á öðru máli en ensku eða Norðurlandamáli skal fylgja staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda.

  6. Samþykki forsjáraðila. Á aðeins við ef báðir foreldrar fara með forsjá barns.

  7. Samþykki barns á aldrinum 12-18 ára.

Lög

Íslenskur ríkisborgararéttur er endurveittur norrænum ríkisborgurum samkvæmt 14. grein C laga um íslenskan ríkisborgararétt númer 100/1952.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun