Endurveiting íslensks ríkisfangs
Á þessari síðu
Fædd og uppalin á Íslandi
Einstaklingur sem fékk íslenskt ríkisfang við fæðingu og bjó á Íslandi til 18 ára aldurs en missti síðan íslenskt ríkisfang sitt getur að ákveðnum skilyrðum uppfylltum fengið íslenskt ríkisfang að nýju með tilkynningu til Útlendingastofnunar.
Fái einstaklingur íslenskt ríkisfang veitt að nýju, fá ógift börn hans undir 18 ára aldri einnig íslenskt ríkisfang, ef hann hefur forsjá þeirra og þau eiga lögheimili hér á landi.
Skilyrði
Skilyrði fyrir endurveitingu íslensks ríkisfangs með tilkynningu er að:
Þú hafir fengið íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu.
Þú hafir átt lögheimili á Íslandi samfellt til 18 ára aldurs.
Þú hafir átt lögheimili á Íslandi síðustu tvö árin áður en tilkynning er lögð fram.
Kostnaður
Afgreiðslugjald er 13.500 krónur.
Tilkynningin er ekki tekin til vinnslu fyrr en greiðsla hefur borist, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.
Hvernig er sótt um
Tilkynningar er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.
Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða senda í bréfpósti á sama heimilisfang.
Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland
Fylgigögn
Sjá nánari leiðbeiningar varðandi kröfur til skjala. Ekki þarf vottun á íslensk vottorð.
Tilkynning: Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
Greiðslukvittun.
Erlent vegabréf: Afrit af síðum með persónuupplýsingum, rithandarsýnishorni og öllum stimplum.
Íslenskt vegabréf: Ef við á. Afrit af síðum með persónuupplýsingum, rithandarsýnishorni og öllum stimplum.
Fæðingarvottorð: Staðfest afrit af frumriti. Frumritið þarf að vera lögformlega staðfest með apostille vottun eða keðjustimplun, og síðan tekið af því staðfest afrit.
Þýðing fæðingarvottorðs: Ef vottorðið er ekki á ensku eða Norðurlandamáli þarftu að leggja fram staðfest afrit eða frumrit þýðingar, sem gerð er af löggiltum skjalaþýðanda.
Búsetutímavottorð frá Þjóðskrá: Vottorðið tilgreinir í hvaða landi eða löndum þú hefur átt lögheimili frá upphafi lögheimilisskráningar á Íslandi til dagsins í dag.
Gögn um veitingu núverandi erlends ríkisfangs.
Ef þú átt börn yngri en 18 ára
Börn þín geta fengið íslenskt ríkisfang um leið og þú, ef:
Þau eru yngri en 18 ára.
Þau eru ógift.
Þau eiga lögheimili á Íslandi.
Þú hefur forsjá þeirra.
Fylgigögn fyrir börn
Vegabréf: Afrit af síðum með persónuupplýsingum, rithandarsýnishorni og öllum stimplum.
Fæðingarvottorð: Staðfest afrit af frumriti. Frumritið þarf að vera lögformlega staðfest með apostille vottun eða keðjustimplun, og síðan tekið af því staðfest afrit.
Þýðing fæðingarvottorðs: Ef vottorðið er ekki á ensku eða Norðurlandamáli þarftu að leggja fram staðfest afrit eða frumrit þýðingar, sem gerð er af löggiltum skjalaþýðanda.
Forsjárgögn.
Ef þú ferð ein/einn með forsjá barnsins, þarftu að leggja fram gögn til staðfestingar á forsjá. Frumrit gagna skulu vera vottuð með ‚apostille‘ vottun eða tvöfaldri staðfestingu, og síðan tekið af þeim staðfest afrit. Ef gögnin eru á öðru máli en íslensku, ensku eða Norðurlandamáli þarf einnig að skila löggiltri skjalaþýðingu þess.
Ef báðir foreldrar fara með forsjá barnsins, þarftu að leggja fram undirritað samþykki hins forsjáraðilans og afrit af vegabréfi viðkomandi.
Samþykki barns, ef það er á aldrinum 12 til 18 ára.
Lög
Íslenskur ríkisborgararéttur er endurveittur þeim sem eru fæddir og uppaldir á Íslandi til 18 ára aldurs samkvæmt 4. grein laga um íslenskan ríkisborgararétt númer 100/1952.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun