Uppýsingar um PEM samkomulagið
Þjónustuaðili:
PEM-samkomulagið (svæðisbundinn samningur um sameiginlegar upprunareglur Evrópu og Miðjarðarhafsríkja) felur í sér sameiginlegar reglur um uppruna vara sem gilda samkvæmt fjölmörgum fríverslunarsamningum milli ríkja í Evrópu og á Miðjarðarhafssvæðinu.
Reglurnar ákvarða hvort vara telst upprunavara og geti þar með notið tollfríðinda, svo sem lægri tolla eða tollfrelsis við innflutning.
PEM-samkomulagið gildir um upprunareglur í flestum fríverslunarsamningum sem Ísland er aðili að við ríki í Evrópu og á Miðjarðarhafssvæðinu. Reglurnar mynda sameiginlegan ramma sem tryggir samræmda beitingu upprunareglna milli samningsaðila.
Fríverslunarsamningar Íslands sem PEM-samkomulagið nær til
Upprunareglur PEM-samkomulagsins gilda fyrir Ísland í viðskiptum samkvæmt fríverslunarsamningum við eftirfarandi:
Sviss, Noreg og Liechtenstein (EFTA)
Evrópusambandið
Albaníu
Bosníu og Hersegóvínu
Egyptaland
Færeyjar
Georgíu
Ísrael
Jórdaníu
Líbanon
Marokkó
Moldóvu
Svartfjallaland
Norður-Makedóníu
Palestínu
Serbíu
Túnis
Tyrkland
Úkraínu