Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu
Þjónustuaðili:
Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1
Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.
Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.
Tveggja stafa landslykill þess lands þar sem endastöð vöruflutninganna er, til dæmis
DE fyrir Þýskaland
GB fyrir Bretland
Gerð svæðis: (a2)
E-6 (10)
Skrifaðu 1 ef vara er flutt í gámi, 0 ef ekki.
Gerð svæðis: (a1)
Flutningskostnaður | Lykill | Skýring |
|---|---|---|
Greiðsla flutnings miðast við brottfararstað | EXW | Vara afhent frá verksmiðju |
Meginflutningskostnaður ógreiddur | FCA | Frítt til farmflytjanda |
FAS | Vara afhent frítt að skipshlið | |
FOB | Vara afhent frítt um borð | |
Meginflutningskostnaður greiddur | CFR | Kostnaður og flutningsgjald greitt |
CIF | Kostnaður, vátrygging og flutningsgjald greitt | |
CPT | Flutningur greiddur | |
CIP | Flutningur og vátrygging greidd | |
Flutningskostnaður miðaður við afhendingu á komustað | DAF | Vara afhent við landamæri |
DES | Vara afhent úr skipi | |
DEQ | Vara afhent af hafnarbakka | |
DDU | Vara afhent án greiðslu aðflutningsgjalda | |
DDP | Vara afhent og aðflutningsgjöld greidd |
Dæmi um útfyllingu:
Þegar viðtakandi á að greiða allan kostnað sem leggst á vöru frá því að hún er afhent frá verksmiðju skal tilgreina í fremri hluta reitsins lykilinn EXW (ex works) en í síðari hlutanum afhendingarstaðinn.
Greiði sendandi allan flutningskostnað og tryggingu til ákvörðunarstaðarins skal færa inn CIF í fremri hlutann en ákvörðunarstaðinn í þann aftari.
Greiði sendandi flutningskostnað þar til vörurnar eru komnar um borð í skip skal færa inn í fremri hluta reitsins FOB en í hlutann þar fyrir aftan staðinn þar sem vörunum er skipað um borð.
Gerð svæðis: Lykill afhendingarskilmála (a3), Viðmiðunarstaður (a..21)
E-6 (15)
19 stafa sendingarnúmer sem farmflytjandi gefur sendingu. Kemur á flutningsgjaldsreikningi eða tilkynningu farmflytjanda:
Hluti | Lýsing |
|---|---|
A | Farmflytjandi – tákn skipafélagsins eða flugfélagsins |
BBB | Flutningsfar – skammstöfun fyrir flutningsfar. |
CCCC | Brottfarardagur. Fyrstu tveir bókstafirnir standa fyrir viðkomandi dag í mánuði en tveir síðustu fyrir mánuðinn. |
D | Ár – síðasti stafur ártals. |
EE | Hleðsluland – LOCODE landslykill |
FFF | Hleðslustaður – LOCODE staðall |
GGGG | Númer sendingar – farmskrárnúmer eða innfærslunúme. Töluröð innan hleðslustaðar fyrir hverja ferð. |
H | Vartala til prófunar, færist ekki inn á skýrslu. |
Tollafgreiðsla á pósthúsum
Sendingarnúmer í pósti er eins og almenna sendingarnúmerið 19 stafa tala sem greinist í átta þætti sem hér segir:
A-BBB-CCCC-D-EE-FFF-GGGG-H
A | Sendingarnúmer vegna póstsendingar byrjar ávallt á bókstafnum P. |
BBB | Flutningsfar - þriggja stafa kóði, sem er einkenni pósthúss og venjulegast er póstnúmer tollafgreiðslupósthúss. |
CCCC | Brottfarardagur. Fyrstu tveir bókstafirnir standa fyrir viðkomandi dag í mánuði en tveir síðustu fyrir mánuðinn. |
D | Ár – síðasti stafur ártals. |
EE | Hér skal ávallt skrá IS, tákn fyrir Ísland, þegar um póstsendingu er að ræða. |
FFF GGGG | Staður og farmskrárnúmer. Hér skal skrá U eða H fremst í þetta sjö stafa svæði. U merkir að um böggul/bréf sé að ræða. H merkir að um hraðsendingu sé að ræða. Á eftir U eða H skal skrá viðtökunúmer böggulsins eða bréfsins alls sex stafi. Rita skal 0 (núll) á undan viðtökunúmeri ef það er minna en 6 stafir. Ef útflutningsskýrslan nær yfir fleiri en einn böggul eða bréf skal valið viðtökunúmer þess bögguls eða bréfs sem fyrst kom á pósthúsið, þ.e. lægsta viðtökunúmerið. |
H | Vartala til prófunar, færist ekki inn á skýrslu. |
Þjóðerni skal tilgreina í aftari reit með lykli viðkomandi lands, sjá Tollskrár-lykla.
Gerð svæðis:
Sendingarnúmer (a18)
Þjóðerni flutningsfars (a2)
E-6 (13)
Tilgreinið tegund myntar og heildarfjárhæð reikninganna sem tilheyra sendingunni. Myntin er gefin upp fremst í reitnum sem þriggja stafa skammstöfun (sjá Tollskrárlykla).
Þurfi að umreikna upphæðir milli gjaldmiðla skal nota tollgengi. Tollgengi er kaupgengi sem Seðlabanki Íslands birtir 28. hvers mánaðar (eða næsta virka dag eftir það), og gildir sem tollgengi fyrir tollafgreiðslu allan næsta mánuð. Tollgengið má þó aldrei vera nýrra en það gengi sem var í gildi á útflutningsdegi.
Gerð svæðis:
Lykill myntar (a3)
Heildarfjárhæð (n..11,2)
E-6 (30 og 31)
Tilgreinið með eftirfarandi lykli í fremri hluta reitsins hvort greitt er fyrir vöruna eða ekki.
Greiðslumáti | Lykill |
Útflutningur án endurgjalds (án greiðslu) | 0 |
Útflutningur gegn greiðslu | 1 |
Gerð svæðis: (a1)
Lykill í fremri hluta reitsins:
Lykill | Skýring |
|---|---|
10 | Flutningur á sjó |
11 | Fiskiskip með eigin afla |
16 | Vélknúið ökutæki flutt með skipi |
17 | Tengivagn eða aftanívagn flutt með skipi |
18 | Vatnaskip, flutt með úthafsskipi |
23 | Ökutæki, flutt með skipi |
40 | Loftflutningur |
50 | Póstflutningur |
70 | Fastar flutningaleiðir |
90 | Fyrir eigin afli |
Gerð svæðis: (a2)
Sé vara ekki seld FOB íslenskur útskipunarstaður, skal hér tilgreina flutningsgjald, vátryggingariðgjald og annan kostnað sem bæta þarf við eða draga frá upphæð vörureiknings, til að fá út heildar FOB verðið, sjá reiti 20 og 22. Þar sem að öll skýrslan þarf að vera í sömu mynt þá skal umreikna kostnað, þ.e. flutningsgjald, vátryggingu og annan kostnað, í þá mynt sem reikningurinn er í. Ef reikningur er t.d. í enskum pundum en flutningsgjald í dönskum krónum þá skal umreikna flutningsgjaldið yfir í ensk pund.
Fyrir framan fjárhæð viðkomandi kostnaðarliðar skal setja án stafabils eftirfarandi lykla og samlagningar- eða frádráttarmerki (+ eða - ):
Lykill | Kostnaðarliðir |
|---|---|
FG | Flutningsgjald |
VT | Vátrygging |
EU | Erlend umboðslaun |
AK | Annar kostnaður |
Gerð svæðis:
Lykill (a2) og kostnaðarliðir (n..11,2)
E-6 (28)
Lykill þeirrar tollstöðvar þar sem tollafgreiðsla á að fara fram:
Lykill | Tollafgreiðslustaður |
|---|---|
REYTS | Tollstjóri |
AKRAN | Sýslumaðurinn á Akranesi |
BORBN | Sýslumaðurinn í Borgarnesi |
STYST | Sýslumaðurinn í Stykkishólmi |
PATPF | Sýslumaðurinn á Patreksfirði |
BOLBO | Sýslumaðurinn í Bolungarvík |
ISAIF | Sýslumaðurinn á Ísafirði |
BLOBL | Sýslumaðurinn á Blönduósi |
SAUSA | Sýslumaðurinn á Sauðárkróki |
SIGSI | Sýslumaðurinn á Siglufirði |
OLFOL | Sýslumaðurinn á Ólafsfirði |
AKUBA | Sýslumaðurinn á Akureyri |
HUSHU | Sýslumaðurinn á Húsavík |
SEYSE | Sýslumaðurinn á Seyðisfirði |
ESKEF | Sýslumaðurinn á Eskifirði |
HFNHH | Sýslumaðurinn á Höfn í Hornafirði |
VESVE | Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum |
SELSF | Sýslumaðurinn á Selfossi |
KEFLK | Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli |
KEVKF | Sýslumaðurinn í Keflavík |
KOPBK | Sýslumaðurinn í Kópavogi |
HAFBH | Sýslumaðurinn í Hafnarfirði |
PRVPS | Tollpóststofan í Reykjavík |
Gerð svæðis: (a5)
E-6 (5)