Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu

Þjónustuaðili:

Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1

Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.

Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.

    Inngangur og undirbúningur

    Hvað er útflutningsskýrsla

    Útflutningsskýrsla (SAD – Single Administrative Document) er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Eyðublaðið heitir E-2 á Íslandi. Þú þarft að skila fullfrágengni skýrslu við tollstöð áður en vara getur farið úr landi.

    Pappír eða rafrænt (SMT/VEF)

    • SMT-afgreiðsla, sending beint úr tölvukerfi þínu

    • VEF-afgreiðsla, vefviðmót Skattsins

    • Pappír, heimilt ef færri en 12 skýrslur á ári

    Fylgiskjöl

    • Vörureikningur

    • Farmbréf eða flutningsskjal

    • Flutningsgjaldsreikningur eða tilkynning farmflytjanda

    • Leyfi eða vottorð ef varan er háð útflutningstakmörkunum

    • Upprunasönnun ef viðtakandi þarf tollaívilnun (EUR.1 eða upprunayfirlýsing)

    Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.