Efnisvinnsla og aðgengi á Ísland.is
Ísland.is vefurinn er í stöðugri þróun og þeim fjölgar sífellt sem koma að efnisvinnslu og miðlun innan hans. Því er samstarf og samræming lykilatriði.
Helstu hlutverk
Vefstjórar opinberra aðila tryggja að efni sinna vefja innan Ísland.is sé rétt, skýrt og uppfært miðað við nýjustu upplýsingar.
Ritstjóri Ísland.is leiðir stefnumótun um framsetningu efnis á Ísland.is og þróar efnis- og aðgengisstefnu vefsins. Hann er vefstjórum til ráðgjafar og stuðlar að samvinnu þeirra.
Vörustjóri Ísland.is ber ábyrgð á heildarsýn og tæknilegri þróun vefsins. Hann er tengiliður við hönnuði, forritara og hagsmunaaðila og forgangsraðar verkefnum sem tengjast nýþróun og samspili vefsins við aðrar kjarnavörur Stafræns Íslands.
Þjónustustjóri Ísland.is gætir hagsmuna almennra notenda vefsins. Hann fylgist með því hvernig þjónusta virkar, miðlar ábendingum og athugasemdum til samstarfsaðila og stuðlar að því að þróun og úrbætur byggi á raunverulegri notkun og reynslu.



