Fara beint í efnið

Dvalarleyfi fyrir sjálfboðaliða

Umsókn um dvalarleyfi

Dvalarleyfi fyrir sjálfboðaliða er fyrir einstakling sem kemur til Íslands til þess að starfa fyrir frjáls félagasamtök sem starfa að góðgerðar- eða mannúðarmálum og eru ekki rekin í hagnaðarskyni auk þess að vera undanþegin skattskyldu.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.

Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland

Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 16.000 krónur. Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.

Dvöl á landinu meðan sótt er um

Athugaðu hvort þú sért áritunarskyld/ur.

Lög

Dvalarleyfi fyrir sjálfboðaliða er veitt á grundvelli 67. greinar laga um útlendinga.

Umsókn um dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun