Dvalarleyfi fyrir sjálfboðaliða er að hámarki veitt til eins árs en þó aldrei lengur en til þess tíma sem boð frá frjálsum félagasamtökum nær yfir.
Umsækjandi um slíkt leyfi má ekki byrja að starfa fyrir frjálsu félagasamtökin fyrr en dvalarleyfi hefur verið veitt.
Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Dvalarleyfi útlendings fellur sjálfkrafa niður þegar lögheimili hans, sem skráð var hér á landi, hefur verið skráð erlendis í þrjá mánuði.
Réttur til endurnýjunar leyfis
Ekki er heimilt að endurnýja dvalarleyfið.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.
Réttur til að vinna
Dvalarleyfið veitir ekki rétt til að vinna launað starf á Íslandi.
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun