Fara beint í efnið

Skila ársreikningi fyrir kirkjugarð

Skila ársreikningi til Ríkisendurskoðunar

Ársreikningar kirkjugarða

Ríkisendurskoðun hefur eftirlit með ársreikningum kirkjugarða. Kirkjugörðum er skylt að senda stofnuninni ársreikninga fyrir næstliðið ár, 1. júní ár hvert. Ríkisendurskoðun getur jafnframt kallað eftir upplýsingum og gögnum að baki reikningunum til nánari athugunar.

Ríkisendurskoðun heldur miðlæga skrá yfir alla kirkjugarða sem skila eiga ársreikningum og skráir rekstrar-og efnahagsupplýsingar úr þeim. Árlega birtir Ríkisendurskoðun yfirlit úr ársreikningum kirkjugarða vegna næstliðins árs.