Ábendingar um leigubíla, farþega- og farmflutninga og bílaleigur
Ein af leiðum Samgöngustofu til að sinna eftirliti með leyfishöfum á umferðarsviði er að taka við ábendingum um starfshætti eftirlitsskyldra aðila.
Samgöngustofa gefur út leyfi fyrir farþega- og farmflutninga, leigubíla og bílaleigur. Samgöngustofa hefur eftirlit með því að starfsemi leyfishafa fari fram í samræmi við lög og reglugerðir. Ein af leiðum Samgöngustofu til að sinna eftirliti með leyfishöfum er að taka við ábendingum um starfshætti eftirlitsskyldra aðila.
Ábendingar um starfsemi eftirlitsskyldra aðila veita Samgöngustofu mikilvægar upplýsingar og eru þær því afar vel þegnar.
Sendu okkur ábendingu
Allar ábendingar sem berast Samgöngustofu eru metnar og skoðað hvort tilefni sé til frekari athugunar. Starfsmenn Samgöngustofu í leyfisveitingum og eftirliti taka við ábendingum, meta og skrá þær. Telji stofnunin ástæðu til að taka mál til athugunar er það gert á grundvelli almenns eftirlits, til dæmis hvort starfsemi viðkomandi aðila sé í samræmi við lög og reglur sem um starfsemina gilda.
Samgöngustofa hefur það að markmiði að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi allra persónuupplýsinga við meðhöndlun mála.
Nánar
Nánari upplýsingar um eftirlit Samgöngustofu og starfsemi eftirlitsskyldra aðila á umferðarsviði:
Lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022
Reglugerð um leigubifreiðaakstur nr. 324/2023
Lög um farþega -og farmflutninga á landi nr. 28/2017
Reglugerð um farþega -og farmflutninga á landi nr. 474/2017
Lög um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015
Reglugerð um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 840/2015
Þjónustuaðili
Samgöngustofa