Dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar sem foreldri fylgdarlauss flóttabarns er að jafnaði veitt til fjögurra ára í senn og er endurnýjanlegt.
Einstaklingur sem fær alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann fær sömu réttindi og skyldur og flóttamaðurinn sem hann sameinast hér á landi. Hann er skilgreindur sem flóttamaður samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum og getur því ekki ferðast til heimaríkis/heimaríkja án þess að eiga á hættu að alþjóðleg vernd hans og þar með dvalarleyfi hér á landi verði afturkallað.
Alþjóðleg vernd er veitt á þeirri forsendu að öryggi flóttamanns sé í hættu í heimalandi. Snúi hann þangað aftur gefur það í skyn að ástandið í heimalandi hafi batnað og að flóttamaðurinn þurfi ekki lengur á alþjóðlegri vernd að halda.
Réttur til fjölskyldusameiningar
Dvalarleyfið veitir rétt til fjölskyldusameiningar fyrir
Börn umsækjanda yngri en 18 ára, ef foreldrið hefur forsjá þeirra.
Réttur til að vinna
Dvalarleyfinu fylgir heimild til að vinna án atvinnuleyfis.
Réttur til ótímabundins dvalarleyfis
Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
Athugið að eitt af skilyrðum ótímabundins dvalarleyfis er að hafa ekki hafa dvalist meira en 90 daga erlendis samtals á hverju ári á gildistíma dvalarleyfis, talið frá útgáfudegi leyfis.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun