Þátttaka í dvalarkostnaði á dvalar- og hjúkrunarrýmum
Útreikningur á þátttöku í dvalarkostnaði
Þátttaka í dvalarkostnaði fer eftir tekjum einstaklings að frádregnum skatti.
Svona reiknum við þetta fyrir árið 2026.
Tekjur sem hafa áhrif á útreikninginn
Allar tekjur úr lífeyrissjóðum teljast með. Ekkert frítekjumark gildir um þær.
Allar fjármagnstekjur teljast með, en frítekjumark þeirra er 8220 kr. á mánuði eða 98.640 kr. á ári.
Fjármagnstekjum hjóna er skipt jafnt á milli þeirra. Því er miðað við 50% teknanna hjá hvoru þeirra.
Frítekjumark atvinnutekna er 109.600 kr. á mánuði eða 1.315.200 kr. á ári
Tekjur sem hafa ekki áhrif á útreikninginn
Eftirfarandi greiðslur teljast ekki með:
greiðslur frá TR,
greiðslur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð,
fjárhagsaðstoð sveitarfélaga,
úttekt viðbótarlífeyrissparnaðar.
Hvernig er þátttakan reiknuð?
Fyrst eru viðmiðunartekjur fundnar:
Frítekjumörk eru dregin frá atvinnutekjum og fjármagnstekjum.
Skattur er reiknaður af þeim tekjum sem teljast með í viðmiðunartekjum.
Skattur er reiknaður samkvæmt tekjuskattsprósentu og hámarksútsvari (sjá hér að neðan).
Fullur persónuafsláttur er dreginn frá reiknuðum skatti.
Fjármagnstekjuskattur er reiknaður af fjármagnstekjum eftir að frítekjumark hefur verið dregið frá.
Ef persónuafsláttur nýtist ekki að fullu má nota 22/37 hluta ónýtts persónuafsláttar til að lækka fjármagnstekjuskatt.
Reiknaður skattur er að lokum dreginn frá tekjunum.
Upphæðin sem eftir stendur kallast viðmiðunartekjur.
Hversu mikil er þátttakan?
Stofnanafrítekjumark árið 2026 er 140.045 kr. á mánuði.
Stofnanafrítekjumarkið er dregið frá viðmiðunartekjunum.
Upphæðin sem þá stendur eftir er þátttaka einstaklings í dvalarkostnaði.
Ef viðmiðunartekjurnar eru lægri en stofnanafrítekjumarkið greiðir einstaklingurinn ekkert í dvalarkostnað.
Sérregla fyrir hjón
Ef einstaklingur er í dvöl en maki hans býr áfram heima greiðir hann 70% af reiknaðri þátttöku í dvalarkostnaði.
* Eftirfarandi forsendur gilda við útreikning:
Forsendur 2026 | |
Skattkort | 100,00% |
Persónuafsláttur | 72.492 |
Annað skattþrep | 498.123 |
Þriðja skattþrep | 1.398.451 |
Skatthlutfall í fyrsta skattþrepi | 31,52% |
Skatthlutfall í öðru skattþrepi | 38,02% |
Skatthlutfall í þriðja skattþrepi | 46,32% |
Dæmi um útreikning
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun