Slökkvikerfi
Þú getur sótt um starfsleyfi sem ábyrgðarmaður þjónustuaðila slökkvikerfa hjá HMS.
Skilyrði
Þú verður að hafa lokið námi sem pípulagningameistari eða staðfesting á sambærilegri menntun.
Þú verður að hafa lokið námskeiði sem HMS viðurkennir.
Ábyrgðarmaður skal skila inn afriti af gæðahandbók þjónustuaðila vegna starfseminnar.
Sækja um
Fylgigögn
Staðfesting á að ábyrgðarmaður hafi lokið námskeiði sem HMS viðurkennir.
Staðfesting á viðeigandi menntun ábyrgðarmanns.
Ábyrgðarmaður skal skila inn afriti af gæðahandbók vegna starfseminnar.
Umsókn staðfest
Þú sækir um á vefnum með námskeiðsskírteini.
Þú færð tölvupóst um að umsókn hafi verið staðfest.
Þú getur fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum hjá HMS.
Umsókn samþykkt
Þegar umsókn er staðfest færðu greiðsluseðil í heimabankann.
Þegar þú hefur greitt gjaldið sendir HMS þér starfsleyfisskírteini
HMS skráir þjónustuaðila ábyrgðarmanns á lista yfir þjónustuaðila sem hlotið hafa starfsleyfi.
Leyfið gildir í fimm ár.
Endurnýjun starfsleyfis
Þú getur endurnýjað starfsleyfið eftir fimm ár með því að sækja um á mínum síðum HMS.
Gjöld
Gjald fyrir nýtt starfsleyfi er 45.190 krónur.
Gjald fyrir endurnýjun eða endurveitingu starfsleyfis er 20.700 krónur.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun