Handslökkvitæki
Þú getur sótt um starfsleyfi sem ábyrgðarmaður þjónustuaðila handslökkvitækja hjá HMS.
Þú verður að tilgreina ábyrgðarmann starfsleyfisins.
Einnig er mögulegt að tilgreina starfsmenn sem hlotið hafa námskeiðsskírteini þjónustuaðila brunavarna.
Skilyrði
Ljúka námskeiði um viðhald, skoðun, áfyllingu og þrýstiprófun handslökkvitækja.
Sækja um
Fylgigögn
Með umsókninni þarf að fylgja:
Staðfesting á að ábyrgðarmaður hafi lokið námskeiði sem HMS viðurkennir.
Afrit af umsögn Vinnueftirlits ríkisins vegna húsnæðis.
Ábyrgðarmaður skal skila inn afriti af gæðahandbók þjónustuaðila vegna starfseminnar.
Vottorð um kvörðun búnaðar.
Umsókn staðfest
Þú sækir um á vefnum með námskeiðsskírteini.
Þú færð tölvupóst um að umsókn hafi verið staðfest.
Þú getur fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum hjá HMS.
Umsókn samþykkt
Þegar umsókn er staðfest mun starfsmaður stofnunarinnar hafa samband og ákveða dagsetningu fyrir skoðun á starfsstöðinni.
Að heimsókn lokinni færðu greiðsluseðil í heimabankann.
Þegar þú hefur greitt gjaldið sendir HMS þér starfsleyfisskírteini.
HMS skráir þjónustuaðila ábyrgðarmanns á lista yfir þjónustuaðila með ábyrgðarmann sem hlotið hafa starfsleyfi.
Leyfið gildir í fimm ár.
Endurnýjun starfsleyfis
Þú getur endurnýjað starfsleyfið eftir fimm ár með því að sækja um á mínum síðum.
Gjöld
Gjald fyrir nýtt starfsleyfi er 45.190 krónur.
Gjald fyrir endurnýjun eða endurveitingu starfsleyfis er 20.700 krónur.
HMS mun hafa samband ef kostnaður fellur til vegna heimsóknar starfsmanns stofnunarinnar á starfsstöð.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun