Reykköfunartæki
Þú getur sótt um starfsleyfi sem ábyrgðarmaður þjónustuaðila reykköfunartækja hjá HMS.
Skilyrði
Þú verður að hafa lokið námskeiði sem HMS viðurkennir.
Ábyrgðarmaður skal skila inn afriti af gæðahandbók þjónustuaðila vegna starfseminnar.
Sækja um
Fylgigögn
Staðfesting á að ábyrgðarmaður hafi lokið námskeiði sem HMS viðurkennir.
Vottorð um kvörðun.
Ábyrgðarmaður skal skila inn afriti af gæðahandbók vegna starfseminnar.
Umsókn staðfest
Þú sækir um á vefnum með námskeiðsskírteini.
Þú færð tölvupóst um að umsókn hafi verið staðfest.
Þú getur fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum hjá HMS.
Umsókn samþykkt
Þegar HMS samþykkir umsóknina mun starfsmaður stofnunarinnar hafa samband og ákveða dagsetningu fyrir skoðun á starfsstöðinni.
Að heimsókn lokinni færðu greiðsluseðil í heimabankann.
Þegar þú hefur greitt gjaldið sendir HMS þér starfsleyfisskírteini.
HMS skráir þjónustuaðila ábyrgðarmanns á lista yfir þjónustuaðila sem hlotið hafa starfsleyfi.
Leyfið gildir í fimm ár.
Endurnýjun starfsleyfis
Þú getur endurnýjað starfsleyfið eftir fimm ár með því að sækja um á mínum síðum.
Gjöld
Gjald fyrir nýtt starfsleyfi er 45.190 krónur.
Gjald fyrir endurnýjun eða endurveitingu starfsleyfis er 20.700 krónur.
HMS mun hafa samband ef kostnaður fellur vegna heimsóknar starfsmanns stofnunarinnar á starfsstöð.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun